frávik vegna styrkja úr sjóði er fjármagnar aðstoð við umsóknarríki Evrópusambandsins.
Virðulegur forseti. Já, vissulega vekur það furðu og maður getur ekki annað en velt fyrir sér hver ástæðan sé. Getur verið að ástæðan sé einfaldlega sú að menn eigi erfitt með að svara þeim athugasemdum sem komið hafa fram við þessa umræðu, að þetta sé orðið hálfvandræðalegt mál? Og í stað þess að reyna að bæta málið eða reyna að sannfæra menn um kosti þess að keyra það bara í gegn, láti menn tala um það langt fram á kvöld, líti í aðra átt á meðan eða láti lítið fyrir sér fara og voni það besta, vegna þess að allt megi víkja svo framarlega sem Evrópusambandsumsóknin þokist eitthvað áfram eða aðildarferlið? Að góð vinnubrögð við gerð þingsályktunartillagna eða frumvarpa eða bara það að taka tillit til athugasemda frá sérfræðingum séu allt hlutir sem megi líta fram hjá til að þoka málinu áfram?
Það er auðvitað mikið áhyggjuefni þegar svona stórt mál, eins og umsókn um aðild að Evrópusambandinu, er rekið áfram með þessum hætti, að menn sjái ekki einu sinni ástæðu til þess að taka þátt í umræðu um þau mál sem þeir þó eru að reyna að þvinga í gegn, hvað þá að efna til sérstakrar umræðu um stöðu Evrópusambandsmálanna almennt. Ég minni hér á beiðni hv. þm., fyrrverandi ráðherra, Jóns Bjarnasonar, um að ræða þessi mál við hæstv. forsætisráðherra sem hefur verið í einhvers konar biðstöðu um nokkurra mánaða skeið. Það virðist skorta mjög á viljann til að ræða þetta mál og ég er dálítið hræddur um að við séum að sjá það betur og betur að það sé vegna þess hversu rökin eru veik fyrir þessu.