staðfesting samnings um afhendingu vegna refsiverðrar háttsemi milli Norðurlandanna.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti utanríkismálanefndar um staðfestingu samnings um afhendingu vegna refsiverðrar háttsemi milli Norðurlandanna.
Við umfjöllun málsins komu fyrir nefndina gestir frá innanríkisráðuneyti og utanríkisráðuneyti auk þess sem óskað var eftir minnisblaði frá innanríkisráðuneytinu um tilgreinda þætti þess og birtist minnisblaðið sem fylgiskjal með áliti þessu.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd samning um afhendingu vegna refsiverðrar háttsemi milli Norðurlandanna sem undirritaður var í Kaupmannahöfn 15. desember 2005.
Markmið samningsins eru breytingar á því fyrirkomulagi sem gilt hefur um framsal manna milli Norðurlandanna þar sem hugtakinu framsal er skipt út fyrir afhendingu. Með því er lögð áhersla á að kerfið er gert fljótvirkara og einfaldara. Afhendingarfyrirkomulagið er frábrugðið gildandi framsalsfyrirkomulagi í ýmsum atriðum og stuttir frestir munu gilda um málsmeðferð og afhendingu.
Við umfjöllun málsins óskaði utanríkismálanefnd eftir nánari skýringum frá innanríkisráðuneyti um tvo þætti þess, þ.e. hvaða heimildir ríkið sem fær mann afhentan frá Íslandi hefur til afhendingar eða framsals á viðkomandi til ríkis utan norrænu ríkjanna og hugtakið „stjórnmálaafbrot“. Hvað snertir áframhaldandi afhendingu eða framsal verður slíkt ekki heimilt samkvæmt samningnum nema að uppfylltum skilyrðum samningsins og laga nr. 12/2010. Hvað varðar stjórnmálaafbrot verður ekki hægt að synja um afhendingu á grundvelli þess að um slíkt afbrot sé að ræða. Nefndin áréttar í þessu sambandi að hið nýja kerfi, sem Alþingi hefur þegar tekið efnislega afstöðu til með setningu laga nr. 12/2010, byggist á gagnkvæmri viðurkenningu og trausti á réttarkerfum annarra norrænna ríkja. Að öðru leyti vísast til greinds fylgiskjals með nefndarálitinu
Því er með öðrum orðum þannig háttað, virðulegi forseti, að þegar hafa verið gerðar þær lagabreytingar sem nauðsynlegar eru til að Ísland geti staðið við þær skuldbindingar sem samningurinn um hina norrænu handtökuskipun leggur samningslöndum á herðar. Voru þær samþykktar samhljóða á Alþingi með lögum um handtöku og afhendingu manna milli Norðurlandanna vegna refsiverðra verknaða, nr. 12/2010, með síðari breytingum eins og fyrr var greint. Lögin munu öðlast gildi við gildistöku samningsins. Má því í reynd segja að Alþingi hafi þegar tekið efnislega afstöðu til þess máls sem hér um ræðir og auðvitað má velta upp þeirri spurningu hví ekki var farin sú leið í upphaflegu frumvarpi að kveða þar jafnframt á um fullgildingu samningsins, sem hefði verið mögulegt.
Hvorki er gert ráð fyrir að staðfesting samningsins né að gildistaka fyrrgreindra laga muni hafa í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Hv. þm. Helgi Hjörvar var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Undir nefndarálitið rita auk þess sem hér stendur hv. þingmenn Árni Þór Sigurðsson, Bjarni Benediktsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Ólöf Nordal, Mörður Árnason og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.