ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 120/2010 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 120/2010 að því er varðar fjármálaþjónustu.
Utanríkismálanefnd hefur fjallað um þetta mál en það kemur fram í athugasemdum að innleiðing tveggja tilskipana, þeirra sem hér um ræðir, kallar á lagabreytingar. Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur þegar lagt fram frumvarp til breytinga á lögum um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði, til innleiðingar á ákvæðum umræddrar tilskipunar og sömuleiðis frumvarp til laga um rafeyrisfyrirtæki sem ætlað er að innleiða ákvæði tilskipunar 2009/110/EB.
Ég sé ekki sérstaka ástæðu, virðulegur forseti, til þess að fara ítarlega í gegnum nefndarálitið. Það er að finna á þskj. 1285.
Utanríkismálanefnd er samdóma í því áliti sínu að leggja til að þessi tillaga verði samþykkt. Allir hv. nefndarmenn í utanríkismálanefnd leggja til að tillagan verði samþykkt.
Framsögumaður með málinu var hv. þm. Bjarni Benediktsson, sem er fjarverandi nú, og geri ég þess vegna grein fyrir þessu nefndaráliti og leyfi mér að leggja til að málið verði samþykkt.