fríverslunarsamningur EFTA og Hong Kong, Kína, samningur sömu aðila um vinnumál o.fl.
Frú forseti. Hér er um að ræða tillögu til þingsályktunar um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Hong Kong, Kína og samnings um vinnumál milli sömu aðila og landbúnaðarsamnings milli Íslands og Hong Kong, Kína.
Í athugasemdum með þeirri tillögu sem hér liggur fyrir kemur fram að Hong Kong, Kína er einn af stærstu mörkuðum EFTA-ríkjanna í Asíu og mikilvægur vettvangur fjárfestinga ýmissa fyrirtækja frá EFTA-ríkjunum. Þjónustuviðskipti nema um 90% af þjóðarframleiðslu Hong Kong, Kína. Þá er Hong Kong, Kína bæði vaxandi og vel staðsett miðstöð viðskipta á markaðssvæðinu í Suðaustur-Asíu. Fríverslunarsamningurinn við Hong Kong, Kína er af svokallaðri annarri kynslóð fríverslunarsamninga og inniheldur, auk ákvæða um vöruviðskipti, ákvæði um þjónustuviðskipti, fjárfestingar, hugverkaréttindi, opinber innkaup, samkeppni, viðskipti og umhverfismál, stofnanaákvæði og ákvæði um lausn ágreiningsmála. Á vörusviðinu tryggir samningurinn fríverslunarkjör til Hong Kong, Kína fyrir iðnaðarvörur, sjávarafurðir og unnar landbúnaðarvörur. Fyrir EFTA-ríkin er mikilvægi fríverslunarsamnings þessa ekki síst á sviði þjónustuviðskipta. Með samningnum fá EFTA-ríkin meðal annars aukinn markaðsaðgang hjá Hong Kong, Kína fyrir sjóflutningsþjónustu, fjármálaþjónustu og viðskiptaþjónustu.
Samhliða fríverslunarsamningnum var einnig gerður samningur milli EFTA-ríkjanna og Hong Kong, Kína um vinnumál, en þar sammælast samningsaðilar um að virða meginreglur Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og að þeir muni ekki beita reglum um vinnumál sem óréttmætum viðskiptahindrunum. Samningurinn um vinnumál öðlast gildi á sama degi og fríverslunarsamningurinn.
Tvíhliða landbúnaðarsamningur Íslands og Hong Kong, Kína er jafnframt gerður með vísan til fríverslunarsamnings EFTA-ríkjanna og Hong Kong, Kína. Hann öðlast gildi sama dag og fríverslunarsamningurinn og hann tryggir tollfrjálsan aðgang fyrir óunnar landbúnaðarvörur til Hong Kong, Kína. Í staðinn mun Ísland meðal annars fella niður tolla af ýmsum tegundum matjurta og kornmetis, ávaxtasafa og léttvíni.
Utanríkismálanefnd hefur fjallað um þetta mál og leggur til að tillagan verði samþykkt.
Undir nefndarálitið rita Árni Þór Sigurðsson formaður, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson framsögumaður, Árni Páll Árnason, Bjarni Benediktsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, með fyrirvara, Gunnar Bragi Sveinsson, Helgi Hjörvar, Mörður Árnason og Ragnheiður E. Árnadóttir.