140. löggjafarþing — 100. fundur,  16. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[19:57]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Svo það fari ekki á milli mála þá hef ég mikla trú á íslenskum kjósendum og treysti þeim til að kjósa um eins margar tillögur og menn vilja leggja fram í það og það skipti. Það má ekki misskilja mig, enda held ég að hv. þingmaður hafi ekki gert það.

Ef við ætlum að auka beina lýðræðið þurfum við að setja það í þann búning sem ég nefndi. Það er mín persónulega skoðun.

Hv. þingmaður nefndi tillögur sínar. Hv. þm. Vigdís Hauksdóttir lagði fram tillögu um að farið yrði í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu eftir að hún tók að margra mati mikla U-beygju og varð raunar aðlögun en ekki aðildarviðræður. Þá er spurningin: Af hverju er hægt að taka mál og setja þau í nefnd og svæfa þau þar þegar hugsanlega er meirihlutavilji fyrir tillögu hv. þingmanns í þinginu? (Gripið fram í.) Það er umhugsunarefni fyrir okkur.