ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að mér hugnast ekki sú hugmynd að setja einstakar greinar eins og þessar í stjórnarskrána, þó að ég átti mig á því hvað hv. þingmaður er að fara með þessum spurningum sínum. Þess vegna kom ég töluvert inn á það í ræðu minni að það þyrfti að liggja alveg klárt fyrir hvernig bæri að túlka tillögur stjórnlagaráðs. Auðvitað eru kannski engir færari til þess en þeir sem sátu í stjórnlagaráðinu sjálfu. Það má ekki vera þannig að stórum spurningum sé kannski ósvarað og jafnvel hægt að snúa út úr þeim. Þess vegna velti ég því upp hvort skynsamlegt væri að fara þá tvískiptu leið sem ég nefndi. Ég taldi það skynsamlegt í þessari stöðu en það er bara mín persónulega skoðun.
Hv. þingmaður spurði líka um það þegar forsetinn segir: Er ekki eðlilegt að þetta mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu? Forustumenn stjórnarflokkanna hafa margoft talað um að þetta sé einmitt heppilegt mál til þess en þá verðum við auðvitað að staldra við. Að mínu mati er búið að taka enn eitt skrefið og ganga lengra en áður í túlkun á málskotsrétti forsetans þegar forsetinn boðar það, á meðan þingmál er í meðförum þingsins, að vísa því hugsanlega til þjóðarinnar.
Ég verð að segja, virðulegi forseti, að ég er mjög hugsi yfir þessu. Ég held að við þurfum að taka heiðarlega og opna umræðu um þetta í þinginu og úti í þjóðfélaginu og um það hvernig við sjáum þetta fyrir okkur, því að mér finnst, sérstaklega eftir þetta, að það sé í raun á valdi hvers og eins hvernig hann túlkar þetta ákvæði, náttúrlega innan þröngra marka, ég er ekki að segja annað. En það er auðvitað umhugsunarefni að þegar mál er enn þá í þinglegri meðferð boði forseti að það verði jafnvel sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það hefur ekki gerst áður. Þetta er auðvitað eitthvað sem við verðum að fara yfir og ræða.