140. löggjafarþing — 101. fundur,  18. maí 2012.

aðildarviðræður við ESB.

[10:33]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Fyrst um þá fullyrðingu hv. þingmanns að hér sé starfandi minnihlutastjórn í landinu. Hv. þingmaður hefur ekkert fyrir sér í því máli vegna þess að ríkisstjórnin hefur fram til þessa komið fram þeim málum sem hún hefur lagt áherslu á. Við skulum bara sjá hvernig reynir á í framhaldinu en svona fullyrðingar eru náttúrlega út í hött á meðan ekki hefur á það reynt að ríkisstjórnin komi ekki fram málum sínum.

Varðandi ummæli fyrrverandi efnahagsráðherra Árna Páls Árnasonar sem hv. þingmaður vísaði í, um stöðuna í Evrópusambandsviðræðunum og skoðunum hans um að fresta eigi þeim viðræðum, ef ég skildi það rétt, eða setja í þjóðaratkvæðagreiðslu, þá held ég að hann hafi ekki sett þau fram sem fullyrðingu af sinni hálfu. Hafi það verið fullyrðing sem að baki lá er ég gersamlega ósammála honum um að hætta eigi eða fresta ferlinu eða stöðva það. Í einu og öllu hefur verið unnið í samræmi við þá þingsályktunartillögu sem Alþingi samþykkti um aðildarumsóknina og viðræðurnar eru á góðu skriði þannig að ég tel óráð að fara núna að setja þær í þjóðaratkvæðagreiðslu, og ég spyr um hvað ætti að greiða atkvæði. Á fólkið ekki að greiða atkvæði um samningsniðurstöðuna þegar hún er komin? Ég held að það sé í alla staði eðlilegra en fara nú, í miðju ferli, miðjum samningaviðræðum, að stöðva ferlið eða fresta því.