aðkoma lífeyrissjóðanna að skuldaleiðréttingu.
Virðulegur forseti. Að undanförnu hafa staðið yfir viðræður hluta ríkisstjórnarinnar við fulltrúa lífeyrissjóðanna vegna skuldamála heimilanna. Það á enn eftir að koma í ljós hvort þarna er um sýndarviðræður að ræða eða hvort eitthvað raunverulegt kemur út úr þeim og líklega ekki seinna vænna að huga að stöðu heimilanna þegar hátt í fjögur ár eru liðin frá bankahruninu. Þetta hefur kannski meira með það að gera hversu stutt er í næstu kosningar en hversu löng biðin hefur verið.
Það sem vakti athygli mína var hvernig hæstv. efnahagsráðherra rökstuddi að lífeyrissjóðirnir ættu að færa niður lán eða veð. Hann upplýsti að með því yrðu lánasöfnin miklu betri. Þetta hefði góð áhrif á þróun efnahagsmála, það kæmi í rauninni öllum vel að færa niður skuldir heimilanna.
Ástæðan fyrir því að þetta vakti athygli mína var sú að slíkum málflutningi hafa ráðherrar fram til þessa algerlega hafnað. Þetta var einn af þáttunum í þeirri röksemdafærslu sem við framsóknarmenn færðum fram strax í byrjun árs 2009. Þá mátti hæstv. forsætisráðherra ekki heyra á það minnst, reiknaði iðulega allar niðurfærslur lána sem hreinan kostnað, ekki fyrir kröfuhafa heldur ríkið, hreinan kostnað fyrir ríkið, rétt eins og allt mundi innheimtast ef ekkert yrði að gert. Því finnst mér við hæfi að spyrja hæstv. forsætisráðherra nú hvort hún sé sammála hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra og sé komin á þá skoðun að niðurfærsla lána geti verið góð fyrir samfélagið allt og jafnvel þeir sem þurfa að bera kostnaðinn að einhverju leyti, til að byrja með, geti til lengri tíma litið séð sér hag í því að færa niður lán eða ganga a.m.k. lengra en gert hefur verið í að koma til móts við skuldsett heimili.