atkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við ESB.
Frú forseti. Hv. þm. Árni Páll Árnason og Helgi Hjörvar, sem báðir teljast nú sennilega til þeirra þingmanna sem eru skoðanamyndandi innan Samfylkingarinnar, hafa lýst því yfir að eðlilegt sé að gengið verði til atkvæða um þá spurningu hvort halda eigi áfram umsóknarferlinu að ESB. Það má alveg ljóst vera að sú ákvörðun að sækja um aðild að ESB er þvert gegn stefnu Vinstri grænna. Það hefur legið fyrir og ákvörðunin hefur augljóslega valdið Vinstri grænum töluverðum búsifjum pólitískt séð. Afstaða einstakra þingmanna er þekkt. Ég ætla að leyfa mér að vitna í ræðu sem hæstv. umhverfisráðherra hélt þegar við vorum að afgreiða þetta mál sumarið 2009. Þar segir hæstv. umhverfisráðherra, með leyfi virðulegs forseta:
„Ég hef þá sannfæringu að Íslandi sé betur borgið utan Evrópusambandsins en innan þess.“
Ég beini eftirfarandi spurningum til hæstv. umhverfisráðherra: Getur umhverfisráðherra stutt þá þingmenn Samfylkingarinnar sem segja nú að eðlilegt sé að þjóðin fái að kjósa um hvort áfram verði gengin þessi braut í átt til aðildar að ESB? Er hæstv. umhverfisráðherra tilbúin að beita sér fyrir þeim sjónarmiðum innan ríkisstjórnarinnar?