ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Forseti. Það er vandi með þann rétt sem ætlunin er að tryggja og í þessu tilviki að öllum verði tryggður réttur til sanngjarnra launa. Væri ekki rétt að spyrja núverandi seðlabankastjóra að því hvernig honum hafi gengið að eiga við hæstv. forsætisráðherra í þeim efnum? Ég held að það væri skemmtilegt að fá lýsingu á því frá Má Guðmundssyni hvernig þau loforð um sanngjörn laun sem honum voru gefin í aðdraganda ráðningar sinnar hafi gengið eftir. Hann er nú í máli við vinnuveitanda sinn til að innheimta þau laun sem honum voru gefin fyrirheit um. Það er einfalt mál að setja svona hluti fram en erfiðara að fullnusta þá. Ég held að þetta ákvæði ásamt ýmsum öðrum sé mjög gildishlaðið og nánast útilokað að setja í lagatexta og hafa fulla sannfæringu fyrir því að tryggingin á fullyrðingunni gangi eftir. Það er útilokað (Forseti hringir.) og þetta er ákvæði sem hlýtur að verða að taka til algerrar endurskoðunar.