ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Forseti. Þetta var mjög athyglisverð nálgun hjá hv. þingmanni á spurningunni um hvað veldur því að spurningavagninn inniheldur ekki fleiri spurningar en þessar sex. Ég held að svar mitt við því hvort ríkisstjórnin sé að forðast þessar beinu spurningar sem hún telur að séu andstaða við meðal þjóðarinnar, sé einfaldlega sú staðreynd að allt frá upphafsdögum þessarar ríkisstjórnar hefur legið fyrir vilji til að endurskoða stjórnarskrána. Nú þremur árum seinna erum við enn á byrjunarreit þess máls. Ástæðan er bara ein. Ríkisstjórnin þorir ekki af einhverjum ástæðum að ganga til móts við fólkið í landinu með tillögu að nýrri eða endurskoðaðri stjórnarskrá fyrr en undir lok líftíma síns. (Forseti hringir.) Hún veit vel að hún á mjög á hættu að ná ekki kjöri í framhaldi af næstu kosningum.