140. löggjafarþing — 101. fundur,  18. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[17:59]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir tækifærið til að skýra þær tvær breytingartillögur sem ég náði ekki að fara yfir í ræðu minni. Annars vegar er það tillaga sem hljóðar svo:

„Er mikilvægt að ákvæði stjórnarskrár Íslands séu framkvæmanleg?“

Það er ekki að ástæðulausu sem ég spyr um þetta. Þetta hefur, ótrúlegt en satt, verið nokkuð umdeilt í umræðum um stjórnarskrá. Nú eru sumir reiðubúnir til að halda því fram að í stjórnarskrá sé í lagi að hafa ákvæði sem lýsa fyrst og fremst vilja eða löngun þeirra sem skrifa stjórnarskrána hvernig þeir vilji helst að heimurinn sé, eða Ísland að minnsta kosti. Þannig geta jafnvel farið inn stjórnarskrárákvæði á borð við það að allir eigi rétt á því að vera heilbrigðir. Auðvitað viljum við öll, ég held að óhætt sé að fullyrða það, að sem flestir séu heilbrigðir. En ef menn skrifa það í stjórnarskrá, ef í stjórnarskrá verður grein þar sem segir að allir eigi rétt á að vera heilbrigðir, hvernig er þá hægt að framkvæma það?

Ég er því þeirrar skoðunar að orðalagið í stjórnarskránni verði að vera þannig að það veiti stjórnvöldum raunverulegt aðhald til að bjóða upp á sem besta heilbrigðisþjónustu til að vinna að því að sem flestir verði heilbrigðir, en stjórnarskráin getur ekki mælt fyrir um það að allir séu heilbrigðir.

Svo er það hin tillagan og í henni segir:

„Er mikilvægt að ákvæði stjórnarskrár Íslands séu auðskiljanleg?“

Það er ekki heldur að ástæðulausu sem ég tel rétt að spyrja um þetta ef á annað borð verður farið út í það að kanna hug fólks til, eins og hv. formaður (Forseti hringir.) stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar orðaði það, hugmyndafræðinnar á bak við stjórnarskrá. Ég næ því miður ekki, frú forseti, að fara yfir það í þessu andsvari.