ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Frú forseti. Ég hef þá trú að það sé meiri hluti í þinginu fyrir því að leyfa þjóðinni að taka ákvörðun um það hvort aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði haldið áfram. Það kom meðal annars fram hér í umræðum fyrir tveimur vikum, meira að segja virðast hv. þingmenn Hreyfingarinnar sem eru komnir nánast upp í ból hjá ríkisstjórninni ekki tilbúnir að standa gegn því að þjóðin fengi að segja skoðun sína á því hvort aðildarviðræðum við Evrópusambandið yrði haldið áfram. Síðan hafa tveir fyrrverandi hæstv. ráðherrar fjallað um að slík atkvæðagreiðsla ætti að fara fram og nú hefur einn nýr ráðherra, hæstv. umhverfisráðherra, fjallað um slíkt hið sama.
Þó hefur maður ákveðnar áhyggjur af því hvað hæstv. forsætisráðherra og hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra, forustumenn ríkisstjórnarinnar, ráða miklu. Hæstv. forsætisráðherra sagði í morgun að það væri óráð að leyfa þjóðinni að koma að þessum málum. Þannig lýsti hún beinu lýðræði á máli sem henni er ekki þóknanlegt. Ég hef ákveðnar áhyggjur af því að (Forseti hringir.) málum verði þannig háttað að þessi sjálfstæða þingsályktunartillaga (Forseti hringir.) komist ekki til atkvæða og að hugur manna fái ekki að koma hér fram. Ég hef fulla trú á því að það sé meiri hluti fyrir því (Forseti hringir.) í þinginu að leyfa þjóðinni að koma að þessum málum í þjóðaratkvæðagreiðslu.