140. löggjafarþing — 101. fundur,  18. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[18:30]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla kannski ekki að gera orð hv. þingmanns að mínum. Hins vegar blasir við og er öllum ljóst að ríkisstjórnin hefur átt í miklum erfiðleikum með að koma málum í gegn sem raunverulega skipta máli. Maður sér það á forgangslista ríkisstjórnarinnar núna. Skoðum hvaða mál það voru sem hæstv. forsætisráðherra vildi ólmur koma í gegn. Það voru breytingar á Stjórnarráðinu, stjórnlagaráðstillögurnar, veiðigjaldafrumvarpið og fiskveiðistjórnarkerfið. Ég held að þetta séu ekki málin sem valda því að unga fólkið er að flytja úr landi.

Ég fékk tövupóst frá góðum félaga mínum í síðustu viku. Hann hefur verið við nám erlendis og er að velta fyrir sér að koma heim. Hann er ekki að bíða eftir því að stjórnarskráin breytist upp á það hvort hann komist heim. Hann er að bíða eftir því að það verði tekið á málefnum einstaklinga og fyrirtæki, atvinnulífinu komið af stað, framleiðsla aukin og tekið á skuldavanda heimila og einstaklinga sem ráða ekki við sín mál, (Forseti hringir.) tekið á verðtryggingunni o.fl. Þetta eru stóru málin sem skipta mestu máli og brenna á fólki í dag en ekki (Forseti hringir.) þær tillögur sem ríkisstjórnin leggur fram í þessu máli eða öðrum.