ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Frú forseti. Það liggur nú við að maður hætti við að taka þátt í þessari umræðu þegar hv. þm. Tryggvi Þór Herbertsson kemur svo berlega upp um fordóma sína að hann velur pólitískum andstæðingum hér orð að þeir séu vangefnir. (TÞH: Það er vitleysa.) Þó að það hafi ekki verið sagt héðan beint úr pontu var það gert þegar þú gekkst úr pontunni til okkar sem hér sitjum, (Gripið fram í.) hv. þingmaður. (Gripið fram í.) (REÁ: Ertu ekki í andsvari við …?) (TÞH: …ljúga upp einhverju …) (Forseti hringir.)
(Forseti (RR): Forseti biður hv. þingmenn beggja megin við ræðupúlt um að gæta orða sinna.)
Frú forseti. Það kann vel að vera að einhverjir álíti okkur sem hér erum núna að reyna að koma því til þjóðarinnar sem lofað var, þ.e. að fá að taka afstöðu í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu til þess frumvarps sem stjórnlagaráðið lagði fram, að menn telji að við séum vangefin eða eitthvað allt annað, við séum að gera þetta af illum hug, (Gripið fram í: Þetta er ekki í lagi.) af vangetu og af því að við getum ekki neitt. (Gripið fram í.) Það var annað orðið, hv. þingmaður, en það er ekki svo.
Það vill svo til að ekki eru allir jafngleymnir. Ég man eftir hv. þingmanni, frú forseti, Ásmundi Einari Daðasyni sem var einu sinni í þingflokki Vinstri grænna og bauð sig fram fyrir þann flokk. Ég vil spyrja hv. þingmann: Hvenær skipti hann um skoðun á því að taka ætti upp þjóðaratkvæðagreiðslur um mikilvæg mál? Og hvernig stendur á því að hann kallar tillögu um slíkt ýmist skoðanakönnun eða spurningavagn og gerir lítið úr því? Ég man líka eftir því að hv. þingmaður studdi heils hugar ýmislegt annað sem ég ætla að koma að í seinna andsvari mínu. En hvenær skipti hv. þingmaður um skoðun?