ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Hæstv. forseti. Það er ástæða til að bregðast sérstaklega við einu í ræðu hv. þm. Ásmundar Einars Daðasonar. Það er áframhaldandi vangaveltur hans um fullveldisframsalið.
Ég vil taka það fram að sú breytingartillaga sem ég stend að ásamt hv. þm. Ólöfu Nordal felur ekki í sér neina afstöðu til málefnisins sem slíks, hvorki þessi né þær sem varða stöðu forsetans, þ.e. málskotsréttinn eða afskipti hans af stjórnarmyndunum. Við teljum það hins vegar ótvírætt mikilvægt að fá fram vilja þjóðarinnar um þetta ef á annað borð verður farið út í að spyrja með þessum spurningavagni, eins og hv. þingmaður kallar þetta, sem er auðvitað réttari lýsing en þjóðaratkvæðagreiðsla ef út í það er farið.
Varðandi fullveldisframsalið skulum við hafa í huga að tiltölulega sjaldan hefur reynt á það frá því að við gengum í EES. Þegar við gengum í EES var lögfræðingahópur fenginn til þess að meta hvort sá samningur samræmdist fullveldisákvæðum stjórnarskrárinnar. Hann taldi að vissulega væri farið að ákveðnum þolmörkum en hins vegar væri samningurinn innan marka. Svipuð niðurstaða var uppi þegar við gengum í Schengen. Þá var skoðað sérstaklega af sérfræðingum á sviði stjórnskipunarréttar og öðrum réttarsviðum hvort um væri að ræða óheimilt fullveldisframsal. Hið sama hefur verið gert tvisvar eða þrisvar þegar við höfum verið að breyta EES-samningnum og það hefur alltaf verið niðurstaða sérfræðinga að ekki hafi verið um óheimilt framsal að ræða.
Hættan er því sú að með því að (Forseti hringir.) setja ákvæði af því tagi sem hér um ræðir í stjórnarskrá sé verið að opna (Forseti hringir.) þetta töluvert mikið og enn frekar en nú er.