140. löggjafarþing — 101. fundur,  18. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[23:44]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Þetta voru mjög athyglisverðar spurningar og að mínu mati hárréttar. Þegar menn kjósa eru þeir nefnilega yfirleitt að taka afstöðu til einhvers sem á að gerast. Menn eru ekki að kjósa sísvona að gamni sínu um eitthvað sem hefur engin áhrif.

Eðli þess ferlis sem á að fara í gang í haust er skoðanakönnun. Það næðist í raun miklu betri niðurstaða með skoðanakönnun en kosningu því að þá er hægt að fá frávikskannanir á ýmsum spurningum, það er hægt að hafa þýði jafndreift milli kynja og aldurs o.s.frv.

Þegar menn kjósa búast þeir við því að taka ákvörðun um eitthvað. Ferlið sem á að fara í gang í haust er ekki ákvörðun, og það er meðvitað, því að menn ætla að breyta því sem kjósendur taka ákvörðun um á meðan á ferlinu stendur. Skoðanakönnun væri því miklu betri kostur, miklu ódýrari og gæfi betri niðurstöðu.

Svo er annað sem má ekki gleyma. Þegar fólk fer og kýs, eins og ég sagði áðan, telur það sig taka afstöðu og hafa áhrif. Svo kemur í ljós að það hefur engin áhrif og því er meira að segja sýnd þvílík vanvirðing með því að breyta stjórnarskránni meðan greidd eru atkvæði um eitthvað ákveðið í henni. Það getur valdið verulegum trúnaðarbresti milli kjósenda og Alþingis og orðið til þess að skoðanir manna á þessari stjórnarskrá verði mjög léttvægar. Þetta getur því skaðað stjórnarskrána allverulega og ég vara við því og þess vegna tala ég hér um einstök atriði í stjórnarskránni.