ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Frú forseti. Í fyrsta lagi tel ég alveg einboðið og sjálfsagt að það verði kosið um vilja þjóðarinnar til að ganga í Evrópusambandið og styð heils hugar tillögu Vigdísar Hauksdóttur í þeim efnum. Ég tel hana kannski eitt stærsta málið í þessum pakka sem við erum hér að ræða, þ.e. að þjóðin fái að segja sitt um það.
Af því að í 67. gr. er kveðið á um það að þjóðin eigi ekki að fá að kjósa um þjóðréttarskuldbindingar veltir maður fyrir sér ESB-inngöngunni, er hún ekki þjóðréttarskuldbinding? Það er talað um að Evrópusambandið sé stofnun sem verið er að gera samning við. Er það ekki þjóðréttarskuldbinding? Gæti það farið svo, ef þetta kæmi inn í stjórnarskrána, að við mættum ekki einu sinni kjósa um þessa aðild að Evrópusambandinu? Við höfum verið að ræða það hér fyrr hvernig eigi að skilgreina Evrópusambandið. Er það stofnun eða er það ríkjasamband? Þess vegna á það að vera alveg á hreinu að þjóðin megi kjósa um þjóðréttarskuldbindingar. (Gripið fram í: Nákvæmlega.)
Að einu öðru vildi ég líka víkja, að í þessum tillögum er ekki heimild fyrir því að minni hluti þingmanna megi krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um mál. Ég veit að þetta er í dönsku stjórnarskránni, þar getur að mig minnir þriðjungur þingmanna krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekið mál. Ég veit ekki annað en að þetta hafi einmitt verið í umræðunni og ég veit að innan míns flokks var í umræðunni að ákveðinn hluti þingmanna gæti líka óskað eftir þjóðaratkvæðagreiðslu.
Mér finnst að það eigi að nota tækifærið og opna sem víðast aðkomu að því að þjóðin fái að segja sitt um tiltekin mál, bæði í gegnum beina aðkomu og óska eftir því sjálf (Forseti hringir.) og hins vegar líka að þingmenn og þingið geti óskað þess sé (Forseti hringir.) hæfilegur fjöldi á bak við.