140. löggjafarþing — 102. fundur,  19. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[12:05]
Horfa

Kristján Þór Júlíusson (S) (andsvar):

Forseti. Ég þakka fyrir andsvarið. Ég held að málefni sveitarfélaga og samskipti sveitarfélaganna og ríkisins þurfi rýmri tíma en við höfum hér. Ég tek undir það að orðalagið sem hv. þingmaður vitnaði til er ekki skýrt. Í grunninn er ég þeirrar skoðunar að samskipti ríkis og sveitarfélaga, þessara tveggja stjórnvalda, ættu að vera skýrari og að reyna ætti að hafa línurnar þar á milli tiltölulega einfaldar og skýrar, þ.e. að það liggi fyrir hver verkefni hvors stjórnsýslustigs um sig eru. Svo á að liggja að baki stíft afmarkaður grunnur fyrir tekjur til að standa undir þeim lögskipuðu verkefnum sem þar er að finna.

Því miður er fyrirkomulagið á þessu í dag á þann veg að það er mikið sullumdrull, eins og krakkar kalla það stundum, þ.e. óskýr skil þarna á milli. Þess vegna lendum við oftar en ekki í því að sveitarfélögin fá verkefni með lagasetningu héðan úr þinginu án þess að þeim fylgi lögskipaðir tekjustofnar.

Ég er ekki hallur undir þá aðferð sem meðal annars hefur komið fram í umræðu um veiðileyfagjöldin, að hluti þeirra skuli fara í ríkissjóð sem eigi síðan að deila hluta þeirra út til tiltekinna sveitarfélaga og svo aftur inn í ákveðin verkefni eða ákveðinn sjóð. Ég hallast með öðrum orðum að því að ríkisvaldið eigi einfaldlega að afmarka skýrar en gert er verkefni og tekjur sem sveitarfélögunum eru ætlaðar til að standa undir lögskipuðum verkefnum.

Mér finnst ekki kveðið nægilega skýrt að orði í þeim texta stjórnlagaráðs sem hv. þingmaður vitnaði til. Annað mál er hvort um þetta eigi að gilda mjög nákvæmlega útfærð orð í stjórnarskránni, það er miklu flóknari umræða.