140. löggjafarþing — 102. fundur,  19. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[12:24]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Varðandi þetta síðara sit ég ekki nema sem varamaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þannig að ég hef ekki getað fylgst með umræðunni. Ég hefði reyndar getað aflað mér upplýsinga um umræðuna um þá hugmynd mína að þjóðin greiði atkvæði um stjórnarskrána og hvernig um hana hefði verið fjallað.

Það er rétt hjá hv. þingmanni að sá tími sem stjórnlagaráð, áður stjórnlagaþing, fékk til að vinna var allt of skammur. Það er ekki við stjórnlagaráð að sakast að mjög margt er í lausu lofti í þessum hugmyndum. Það sem mér finnst langsamlega verst er að í 83 málsgreinum er vísað til þess að Alþingi eigi að tryggja eitthvað. Það stendur til dæmis:

„Frelsi fjölmiðla […] skal tryggja með lögum.“

Hvað gerist ef Alþingi setur ekki lög um frelsi fjölmiðla? Hvernig dæma dómstólar þá? Ég hef spurt að því. Eða ef Alþingi setur lög um frelsi fjölmiðla sem ekki er fullkomið frelsi, hvernig dæma dómstólar þá? Ég hefði talið miklu eðlilegra að þarna hefði staðið:

Fjölmiðlar skulu vera frjálsir.

Þá væri það undirstaða undir löggjöfina, hún hefði gilt sem slík og væri tilefni til dómsúrskurðar ef á þyrfti að halda.

Hv. þingmaður sagði með réttu að öll saga þessara stjórnarskrárhugmynda væri samfelld hrakfallasaga, m.a. kosningin sem var dæmd ógild þannig að þetta er mjög dapurlegt. Nú eru menn að fara út í að senda eitthvað til þjóðarinnar sem kjósendur virðast líta á sem nýja stjórnarskrá en um leið er því lýst yfir að það eigi að fara að breyta henni, meira að segja á meðan og fyrir og eftir kosninguna. Kjósendur munu greiða atkvæði um eitthvað sem verður svo alls ekki þegar upp verður staðið.

Ég hef ekki annað svar við þessu.