ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Frú forseti. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að stjórnlagaráð tekur þetta fyrir í tillögum sínum og hv. þingmaður lýsti því vel. Ég vil samt sem áður spyrja: Af hverju er þjóðin ekki spurð fyrst verið er að leggja af stað?
Það er sú aðferðafræði varðandi þetta allt saman sem ég bara skil ekki. Fjölmargar breytingartillögur hafa komið fram og þar á meðal er ein frá 1. minni hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, þeim hv. þingmönnum Birgi Ármannssyni og Ólöfu Nordal, þar sem lagt er til að þjóðinni gefist fleiri valkostir, til að mynda sá að láta álit sitt í ljós á því hvort grunnur að nýrri stjórnarskrá eigi að vera byggður á þeirri stjórnarskrá sem við búum við, þessu plaggi.
Af hverju er ekki spurt að því ef virkilega er verið sækjast eftir vilja þjóðarinnar? Ég mundi svara því til: Ég tel þetta vera góðan grunn. Það eru hlutir sem þarf að lagfæra og ég er búin að fara yfir það hér í ræðu minni og í fyrri ræðum um þetta mál. Það eru hlutir sem mega betur fara og hafa breyst og þarf að breyta í samræmi við tíðarandann. En grunnurinn — og því oftar sem ég les þetta plagg því meiri aðdáun fyllist ég á því orðalagi sem hér er vegna þess að það felur í sér merkinguna, það lýsir þessu heildstætt án nokkurs orðhengilsháttar. Þess vegna er svo mikilvægt að gefa fólki tækifæri til þess að láta skoðun sína í ljós: Vilt þú yfir höfuð gera breytingar á stjórnarskránni og viltu að þær breytingar (Forseti hringir.) verði þá á grunni núgildandi stjórnarskrár?