ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Frú forseti. Ég get tekið undir með hv. þingmanni, þjóðfundurinn var vel heppnaður og það er mjög mikilvægt. Við vorum í þeim aðstæðum á þessum tíma að það var mikið ákall eftir aðkomu þjóðarinnar og leitað eftir skoðunum hennar. Þess vegna var það fyrirkomulag ákaflega vel heppnað.
Stjórnlagaþingið mistókst algjörlega og það að Hæstiréttur hafi dæmt kosningarnar ógildar, í fyrsta sinn í Íslandssögunni, almennar kosningar, er miklu alvarlegra en viðbrögð hæstv. ríkisstjórnar sýndu. Mér þótti leitt hvernig var farið með það af ákveðinni léttúð og beinlínis gengið á svig við úrskurð Hæstaréttar með því að skipa sama fólkið til verka í stjórnlagaráðinu, með allri virðingu fyrir þeim einstaklingum. Ég tek það sérstaklega fram.
Eitt sem hv. þingmaður nefndi er mjög mikilvægt og það er hvernig til tókst í þessari kosningu áður en hún var dæmd ógild, þ.e. niðurstaðan, hvaðan fulltrúarnir komu. Ég held einmitt að það sýni að eitt af þeim atriðum sem er verið að spyrja hér um hafi ekki gengið upp, jöfnun atkvæðavægis. Það hljómar mjög vel, auðvitað er ég hlynnt því að allir hafi jafnan rétt, hver er það ekki? En hvernig fer það markmið saman við dreifðar byggðir í landinu, að allir íbúar hafi sína fulltrúa? Það fer ekki saman og við sjáum á endanum að massinn á suðvesturhorninu hefur sigur. 2/3 hlutar íbúanna búa hér og auðvitað munu þeir veljast eins og sást í þessari kosningu (Forseti hringir.) umfram einhvern ókynntan aðila af landsbyggðinni. (Forseti hringir.) Það finnst mér ekki vera jafnrétti og ég lít svo á að þetta sé meðal þess sem mistókst í kosningunni.