140. löggjafarþing — 102. fundur,  19. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[14:57]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er algjörlega hárrétt hjá hv. þingmanni, þetta er nefnilega í lögum. Hins vegar er það þannig og það er svolítið merkilegt að við vitum að það er á stefnuskrá Vinstri grænna að skilja á milli ríkis og kirkju. Ég hef spurt mig að því: Af hverju kemur ríkisstjórnin ekki fram með þetta sem stjórnarfrumvarp og leyfir þinginu meðal annars að fara í eðlilega umræðu, þrjár umræður, um hvaða þýðingu það hefur fyrir okkur sem þjóð að afnema þjóðkirkjuna og taka hana úr sambandi? Af hverju er ekki farið yfir þetta? Af hverju er þinginu ekki einfaldlega leyft að fara gaumgæfilega yfir hvaða þýðingu það hefur að skilja algerlega á milli ríkis og kirkju? En ég undirstrika það sem ég sagði áðan í ræðu minni að það hefur verið skilið vel á milli ríkis og kirkju, mun meira en fólk gerir sér grein fyrir.

Ég hef sagt það líka að ég vil vita hvaða þýðingu það hefur almennt fyrir samfélagið. Ég er ekki í þjóðkirkjunni, ég tilheyri annarri kirkjustofnun, kirkjudeild sem er kaþólska kirkjan. Það sem skiptir mig hins vegar máli er að við þorum að viðurkenna að við séum kristin þjóð. Hvað þýðir það þegar við tökum með afgerandi hætti á því að taka þjóðkirkjuna alfarið út úr stjórnarskránni? Hvaða skilaboð erum við að senda til samfélagsins, til alþjóðasamfélagsins, um hvers konar samfélag við viljum byggja hér upp?

Alla þá umræðu, sem er svo mikilvæg, höfum við ekki fengið að taka, ekki bara út af því að þingmenn stjórnarmeirihlutans taka ekki þátt í umræðunni um stjórnlagatillögurnar, heldur ekki síður af því að við erum ekki með raunverulegt þingmál sem fjallar um þjóðkirkjuna, stöðu hennar og stefnu til lengri og skemmri tíma.