140. löggjafarþing — 102. fundur,  19. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[15:01]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Það sem ég vil segja varðandi eignarréttarklásúlurnar og eignarréttarákvæðið þá er ljóst að ákvæðið af hálfu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar er að mestu leyti óbreytt, en þó hafa átt sér stað orðalagsbreytingar. Hér skiptir það máli því að hvert orð — við sjáum það og hægt er að vitna til margra hæstaréttardóma — til breytinga á lögum, stjórnarskrá í þessu tilviki, getur haft verulegar þýðingu. Þess vegna er þýðingarmikið og brýnt að við förum yfir hvort þessar orðalagsbreytingar hafi efnislega þýðingu og breytingu á eignarréttarákvæði stjórnarskrár frá því sem nú er. Þetta er eitt mikilvægasta ákvæðið að mínu mati í stjórnarskrá okkar Íslendinga ásamt mannréttindakaflanum. Þetta er grundvöllurinn að því meðal annar hvernig við höfum byggt upp okkar þjóðríki í gegnum tíðina, þegar við skoðum og lesum hvernig þróun eignarréttar hefur þróast hér allt frá (Forseti hringir.) 874 og (Forseti hringir.) 930 líka. Ég tel því mikilvægt, frú forseti, að farið verði mjög gaumgæfilega yfir þessar breytingar (Forseti hringir.) stjórnskipunarnefndar.

(Forseti (ÁI): Forseti hvetur til þess að menn virði tímamörk í andsvörum.)