ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Virðulegi forseti. Ég tek alveg undir það að þau drög sem liggja fyrir frá stjórnlagaráði er raunverulega meira stefnuyfirlýsing frekar en að vera grunnlög. Stjórnarskráin á að vera stutt, hnitmiðuð og skýr en ekki uppfull af einhverjum rósum sem enginn getur staðið undir og ríkisvaldið ekki uppfyllt eins og til dæmis það að allir eigi sér rétt til lífs, mig minnir að það sé orðað einhvern veginn þannig. Hvernig á að túlka þetta? Eins með þá ofbeldisgrein sem gerð er tillaga um, að allir skuli vera í friði fyrir ofbeldismönnum úti í samfélaginu og inni á heimili sínu. Bíddu — hver á að passa mig ef einhver beitir mig ofbeldi? Hvernig á ríkisvaldið að geta uppfyllt það? Það er þannig sem við þurfum náttúrlega að lesa þetta í gegn.
Varðandi spurninguna sem mér finnst skipa mjög miklu máli núna, um þessi fjögur ár — ef ekki næst fyrir næstu kosningar að samlesa þessa stjórnarskrá við stjórnarskrána okkar, þá lýsi ég fullri ábyrgð á hendur ríkisstjórninni með það því að hún hefur fyrst og fremst sóað tímanum frá þinginu því að þingmenn eru stjórnskipunarvaldið. Leikinn hefur verið tafaleikur eftir tafaleik þar sem málið er markvisst tekið út úr þinginu þannig að við þingmenn höfum ekki getað sinnt skyldu okkar við að fjalla um nýja stjórnarskrá og taka á móti ráðgjöfum varðandi það hvað eigi að standa í henni og hverju eigi að breyta. Ríkisstjórnin ber ábyrgð á því.
Nú er hv. þm. Tryggvi Þór Herbertsson búinn með andsvar sitt. En það skyldi þó ekki vera að það sé vinstri flokkunum á Íslandi hagkvæmt að hafa stjórnskipunarmálin í uppnámi vegna þess spuna sem þeir hafa keyrt á í gegnum tíðina, þ.e. að Sjálfstæðisflokkurinn vilji ekki breyta stjórnarskránni. Það er flott (Forseti hringir.) að fara með þann spuna inn í næstu kosningabaráttu. (Gripið fram í: Hárrétt.)