140. löggjafarþing — 102. fundur,  19. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[15:26]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Vigdís Hauksdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég fór yfir þetta í ræðu minni áðan. Ég tel að hv. þm. Pétri H. Blöndal hafi orðið örlítið á í messunni vegna þess að það skjal sem hann var að lesa upp er fyrsta skjalið sem var lagt fram en nú hefur meiri hlutinn lagt fram breytingartillögu þar sem landskjörstjórn gerði einmitt ítarlegar athugasemdir við þá þingsályktunartillögu sem meiri hlutinn fór fram með á sínum tíma. Til dæmis varð gerð breyting á auðlindaákvæðinu í þá veru að það hljómar samkvæmt breytingartillögunni, með leyfi forseta:

„Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði náttúruauðlindir sem ekki eru í einkaeigu lýstar þjóðareign?“ — Svo já og nei möguleiki.

Ég fór yfir það að þingskjalið sem var lagt hér fram í upphafi varðandi þessa þjóðaratkvæðagreiðslu er brott fallið má segja og úrelt vegna þess að búið er að endurskrifa hvert einasta orð í því. Það eru náttúrlega alveg dæmalaus vinnubrögð hve þetta mál hefur alla tíð verið óvandað og illa búið frá ríkisstjórnarflokkunum.

Hvað varðar þær spurningar sem var bætt við á eftir sem eru teknar upp úr stefnuskrám flokkanna, tvær frá Samfylkingunni, tvær frá Vinstri grænum og ein frá Hreyfingunni, þær spurningar sem merktar eru hér 2–6, ég tel að þeim hafi verið hnýtt við á lokametrunum í vinnslu þessarar þingsályktunartillögu vegna þess að meiri hlutinn óttast einfaldlega að þetta verði fellt, þ.e. spurning eitt, að þjóðin hafni því að tillögur stjórnlagaráðs verði notaðar sem grundvöllur að nýrri stjórnarskrá. Þess vegna er verið að reyna að aðlaga þessar spurningar meira, þ.e. að í fyrsta lagi verði meiri kosningaþátttaka og í öðru lagi að draga þá og milda áhrifin ef landsmenn segja bara hreinlega nei.