lífeyrissjóðirnir og skuldir heimilanna.
Frú forseti. Það er kannski vissara að finna orðum sínum vandlega stað ef hv. þingmaður er að upplýsa um að málaferli séu yfirvofandi af hálfu verkalýðshreyfingarinnar, væntanlega vegna þátttöku lífeyrissjóðanna í skuldaaðgerðum í þágu heimila eða þátttöku í greiðslu sérstakra vaxtabóta. Þá ætla ég að eiga orðastað við þá annars staðar en hér í þingsalnum um það. Ég kannast ekki við að samskipti stjórnvalda og lífeyrissjóðanna hafi gefið tilefni til sérstakrar skerðingar á lífeyri og þannig er það ekki hugsað. Ég geri til dæmis ekki ráð fyrir því vegna þátttöku þeirra í 110%-leiðinni. Þar varð niðurstaðan að allir nytu góðs af og að samlegðaráhrif af skilvirkum aðgerðum til að styðja við skuldug heimili og bæta þau eignasöfn sem eftir stæðu og auka greiðslugetu og greiðsluvilja væru meiri en það sem hver og einn legði af mörkum, þannig að þegar upp væri staðið væru menn í fyrsta lagi kannski ekki að afskrifa mikið sem hefði verið innheimtanlegt og í öðru lagi væru jákvæðu áhrifin meiri og mundu vega það upp og jafnvel svo miklu munar. Þannig hafa menn nálgast þau mál og mér hafa ekki verið færðar sönnur á að það sé ekki áfram þannig.
Með nákvæmlega sama hætti og sömu rökum hafa forustumenn lífeyrissjóðanna væntanlega og verkalýðshreyfingarinnar, aðila vinnumarkaðarins, réttlætt þátttöku lífeyrissjóðanna í greiðslu í starfsendurhæfingarsjóð; að það að koma í veg fyrir ótímabæra örorku létti útgjöldum af lífeyrissjóðum sem nemi svipuðum fjárhæðum eða meiri en þeim sem í inngreiðslurnar fara. Svo er þetta auðvitað alltaf spurning um hvernig menn horfa til hinnar samfélagslegu ábyrgðar lífeyrissjóðanna sem þátttakenda í samfélaginu þrátt fyrir allt, því með fullri og mikilli virðingu fyrir lífeyrissjóðunum þá eru þeir ekki ríki í ríkinu. Þeir eru hluti af Íslandi og hluti af því samfélagi sem við erum að byggja upp og fara með í gegnum erfiðleikana.
Varðandi auðlegðarskattinn er skattstofninn þar skýr og klár. Lífeyristekjur eru skattlagðar og hugsunin í sjóðssöfnunarkerfinu hefur alltaf verið að þær eru skattlagðar á grundvelli þeirra skattareglna sem eru við lýði þegar útgreiðslurnar eiga sér stað. (Forseti hringir.) Ég tel algerlega fráleitt að blanda þessum tveimur hlutum saman.