140. löggjafarþing — 103. fundur,  21. maí 2012.

lengd þingfundar.

[15:37]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfundar er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Það er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta og verður nú gengið til atkvæða um hana.