140. löggjafarþing — 104. fundur,  21. maí 2012.

framtíðarskipan fjármálakerfis.

778. mál
[17:01]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýrsluna sem er um margt ágæt yfirferð yfir stöðuna á fjármálamarkaði og þau atriði sem huga þarf að. Flestir geta líklega tekið undir hinn yfirlýsta tilgang með þessari vinnu og er hér farið ágætlega yfir ýmis álitamál og velt vöngum yfir þeim en ekki er kveðið upp úr um endanlegar niðurstöður í mörgum tilvikum. Það er svo sem eðlilegt fyrsta skref í þessari vinnu.

Það sem eru kannski helst pólitísk tíðindi í þessari skýrslu er að þar opnar hæstv. ráðherra í fyrsta skipti á aðild að Evrópusambandinu, að minnsta kosti skriflega. Ekki verður betur séð í lokakafla skýrslunnar, niðurstöðum á síðu 94, þar sem segir í kjölfar umræðu um vanda fjármálakerfisins, með leyfi forseta:

„Til þess að sigrast á þessum vanda mætti hugsa sér að Ísland gerðist aðili að stærri efnahagsheild með sameiginlegan gjaldmiðil og vaxtakjör sem gerði kleift að afnema verðtrygginguna skipulega.“

Þarna er varla verið að tala um NAFTA eða aðrar efnahagsheildir því að þarna er sérstaklega vísað í efnahagsheild með sameiginlegan gjaldmiðil. Þessari ályktun er ég algjörlega ósammála en ég ætla að fara betur yfir það í umræðum um stöðu mála í Evrópu sem verða hér vonandi áður en langt um líður og nota tímann núna til að fletta í gegnum þessa ágætu skýrslu.

Eins og komið er inn á á allmörgum stöðum í skýrslunni verða menn að sjálfsögðu að taka mið af þeim alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að og þar er kannski EES-samningurinn stærstur. Í því liggur vandinn. Eins og segir á síðu 93 var markmiðið með þeim samningi að gera Evrópu að einum markaði hvað varðar þessa þjónustu. Með leyfi forseta stendur:

„Upphaflegt markmið flestra alþjóðlegra reglna um starfsemi fjármálamarkaða og umgjörð þeirra hefur á síðustu áratugum verið að jafna samkeppnisaðstöðu fjármálafyrirtækja þvert á landamæri (e. level playing field), og ein af grunnstoðum Evrópusamstarfsins sem Ísland er aðili að er einmitt frjálst flæði fjármagns án samkeppnishindrana.“

Það var þessi hugsun, og mætti jafnvel kalla þetta hugsjón, sem íslensku bankarnir nýttu sér til hins ýtrasta á fyrstu árum þessarar aldar og spiluðu á kerfi sem ætlaðist til þess að bankar stæðu jafnfætis í samkeppni óháð stærð þeirra ríkja sem þeir tilheyrðu. Eftir stendur sá takmarkandi vandi sem felst í því að við erum þrátt fyrir allt enn þá þátttakendur í fjármálakerfi sem er gallað. Evrópusambandið, Bandaríkin og fleiri eru að sjálfsögðu að fara í gegnum stöðu fjármálakerfa sinna og munu gera á þeim ýmsar breytingar. Það er réttilega tekið fram í skýrslunni að við höfum þá aðstöðu til þess að fylgjast með því og taka mið af þeim breytingum sem þar verða og þurfum í sumum tilvikum að gera það. Það sem maður óttast er að breytingarnar í Evrópu og Bandaríkjunum og víðar verði ekki nægar, að ekki verði tekið á grundvallarvandanum, vanda sem lýst er ágætlega í skýrslunni á síðu 96, en þar segir, með leyfi forseta:

„Það er hugsanaskekkja að ætla að fjármálakerfið hljóti að vera í lagi sé hver eind í því fyrir sig í lagi. Það þarf að huga að eiginleikum kerfisins í heild og samspili eindanna sem mynda það — og við raunhagkerfið og önnur lönd. Þetta þarf að gera til þess að ná tökum á eðlislægri tilhneigingu kerfisins til ofþenslu …“

Við og aðrar þjóðir stöndum áfram frammi fyrir þeim vanda að eins og kerfið hefur verið byggt upp og mér sýnist stefna í að það verði rekið áfram er til staðar kerfislæg tilhneiging til ofþenslu sem ekki er hægt að hindra með því að taka fyrir hverja eind fyrir sig, eins og það er orðað hérna.

Það er full ástæða til að við Íslendingar leggjum okkar af mörkum í því að endurmeta þetta allt saman. Það sem ég hef þá kannski helst við þessa skýrslu að athuga er að hún sé ekki stærri í sniðum, taki ekki á þeim grundvallarvanda sem er til staðar í uppbyggingu fjármálakerfisins eins og því er háttað í heiminum nú því að Íslendingar ættu að hafa þar reynslu á að skipa sem aðrir gætu haft gagn af.

Svo er fjallað hér um eigandastefnu ríkisins gagnvart bönkunum og ég er í sjálfu sér sammála þeirri lýsingu sem er að finna í skýrslunni á mikilvægi eigandastefnu og hvernig beita eigi henni en ég hef hins vegar efasemdir um að gert hafi verið það sem skyldi til þessa. Við sjáum til að mynda þá gríðarlegu skekkju sem er í verðtryggingarjöfnuði Landsbankans, þess banka sem er að langstærstum hluta í eigu ríkisins. Bankinn er sem sagt í þeirri stöðu að hann hefur verulegan hag af því að verðbólga sé sem mest á meðan maður skyldi ætla að stjórnvöld vildu beita sér fyrir því að draga úr verðbólgu.

Hæstv. ráðherra nefndi hvatakerfi og hversu skaðleg þau hefðu verið. Nú er verið að setja upp mikið hvatakerfi í Landsbankanum sem getur svo sem verið ástæða til að hafa en það þarf þá að hafa í huga að það ýti starfsemi bankans í rétta átt. Eigandastefna skiptir verulegu máli því að allt útlit er fyrir að þessar bankar verði í eigu ríkisins næstu árin.