140. löggjafarþing — 104. fundur,  21. maí 2012.

framtíðarskipan fjármálakerfis.

778. mál
[17:38]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil fá að þakka hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra fyrir þessa skýrslu og að við skulum fá tækifæri til að ræða hana. Ég vil líka sérstaklega fagna orðum ráðherrans um mikilvægi þess að sú nefnd sem mun fá skýrsluna til umfjöllunar, væntanlega efnahags- og viðskiptanefnd, fari vel yfir hana og skili vonandi áliti um efni hennar sem verður síðan hægt að vinna frekar úr á vegum sérfræðinganna, þrímenningana sem búið er að fá í þá vinnu og ráðherrann fór yfir.

Hæstv. ráðherra benti líka á að umræðan nú væri eitt af því sem hópurinn mundi hafa til viðmiðunar þegar hann mótaði og legði fram tillögur sínar út frá þessari skýrslu. Á grundvelli þess mundi ég gjarnan vilja, með leyfi forseta, fara aðeins í gegnum ályktun flokksþings framsóknarmanna 2011 um fjármálakerfið. Í henni kemur eftirfarandi fram, með leyfi forseta:

„Framsóknarflokkurinn telur að tryggja verði fjölbreytni, virka samkeppni og sjálfbærni á fjármálamarkaði. Flest bendir til að bankakerfið sé til muna of stórt, miðað við innlent umfang þess, og að möguleikar séu á umtalsverðri hagræðingu sem skilað geti sér í arðbærara bankakerfi og minni kostnaði fyrir almenning og fyrirtæki. Upplýsingar um eignarhald á bankastofnunum skulu vera opinberar. Framsóknarflokkurinn vill jafnframt að skoðaðir verði kostir og gallar þess að skýr skil verði gerð á milli reksturs viðskipta- og fjárfestingarbankastarfsemi hér á landi.

Framsóknarflokkurinn hefur í gegnum árin lagt áherslu á að blandað hagkerfi einkareksturs, samvinnureksturs og opinbers rekstur sé skynsamlegasta leiðin til að tryggja hagsæld fólksins í landinu.“

Með þessa ályktun til hliðsjónar hef ég farið í gegnum skýrsluna. Ef við nefnum nokkra punkta þá kemur fram að samþjöppun hefur aukist gífurlega á bankamarkaði eftir hrun. Fjögur fjármálafyrirtæki eru með 96,8% markaðshlutdeild. Landsbankinn er með 30,5%, Arion banki með 33,2%, Íslandsbanki með 30,8% og MP banki með 2,3%. Þetta getur maður ekki kallað fjölbreytni og ef eitthvað virðist stefna í enn minni fjölbreytni, samanber þær tillögur Bankasýslunnar að fækka enn frekar fjármálafyrirtækjum á Íslandi með því að sameina hugsanlega stóru bankana eða sameina sparisjóði. Fjármálamarkaðurinn á Íslandi einkennist því af fákeppni. Samkeppniseftirlitið hefur bent á að til að vinna gegn þessu og þeim skaða sem fákeppni getur leitt af sér sé mjög mikilvægt að draga úr aðgangshindrunum. Undir þetta tel ég að flokksþing framsóknarmanna hafi verið að taka undir þegar það benti á að tryggja yrði fjölbreytni.

Eitt af því sem þarf líka að ræða er hvort og hvernig sé hugsanlega hægt að tryggja þátttöku erlendra banka á innlendum fjármálamarkaði. Því miður hefur verið lítill áhugi hjá erlendum fjármálafyrirtækjum að koma hér inn og væntanlega tengist þeim miklu aðgangshindrunum sem eru til staðar.

Við leggjum líka mikla áherslu á að bæta þarf skatt- og lagaumhverfi minni fjármálafyrirtækja og sérstaklega þeirra sem byggja á félagslegri hugmyndafræði eins og sparisjóðirnir og jafnvel eigi að ganga enn þá lengra og setja lög um svokölluð lánasamvinnufélög sem hafa verið mjög vinsæl t.d. í Bretlandi undir nafninu „credit unions“.

Annar punktur sem ég mundi vilja koma inn á er um innstæðutryggingarnar sem er fjallað um í skýrslunni. Ég tel það mjög jákvæða ábendingu sem kemur fram í henni um möguleikana á að halda innstæðum inni sem forgangskröfum eftir að yfirlýsing stjórnvalda um ríkisábyrgð fellur úr gildi. Þetta tel ég eitt af því sem verði að skoða, hvort við eigum ekki að halda þessu ákvæði inni. Ég tel að mikilvægt sé líka að setja takmarkanir á þau fyrirtæki sem eru tryggð af íslenska innstæðutryggingarsjóðnum hvað varðar erlenda starfsemi þeirra, aðeins sé greitt í íslenskum krónum og settar verði ríkari takmarkanir á starfsemi þeirra fjármálafyrirtækja sem bjóða upp á tryggðar innstæður. Það tengist einmitt því sem kom fram um að skoða alvarlega aðskilnað á milli viðskipta- og fjárfestingarbankastarfsemi á Íslandi. Mér þótti leitt að sjá hversu mikil varúð var gagnvart þessu í skýrslunni, það kom skýrt fram að menn vildu flýta sér mjög hægt þar.

Ég og hæstv. ráðherra ræddum mikilvægi þjóðhagsvarúðartækja fyrr í dag og því miður hef ég ekki tíma til að fara yfir það hérna. Sama gildir varðandi umræðuna um lög um fjármálastöðugleika og fjármálastöðugleikaráð. Það er eitthvað sem ég hef haft mikinn fyrirvara á og margir aðrir þingmenn gerðu miklar athugasemdir við til dæmis þá staðreynd að nú er enn á ný verið að færa Seðlabankann undir annað ráðuneyti í staðinn fyrir að hafa þetta undir sama ráðuneyti eins og staðan var áður, samkvæmt ráðleggingum erlendra sérfræðinga.

En þetta er stórt mál. Maður hefði gjarnan viljað hafa meiri tækifæri til að ræða þetta en því miður gefst ekki meiri tími.