140. löggjafarþing — 104. fundur,  21. maí 2012.

framtíðarskipan fjármálakerfis.

778. mál
[17:49]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Frú forseti. Ég vil eins og aðrir þakka fyrir þá skýrslu sem hér liggur fyrir um framtíðarskipan fjármálakerfisins og tel mikilvægt og ekki seinna vænna að við ræðum þau mál á Alþingi og undirbúum stefnumótun til framtíðar hvað það varðar.

Í stuttri umræðu er ekki hægt að fara ítarlega yfir alla þætti sem raktir eru í þessari skýrslu. Ég hef hugsað mér að nefna nokkur atriði sem horfa til framtíðar og staldra ekki mikið við fortíðina, aðrir hafa nú þegar gert það í þessari umræðu.

Gegnumgangandi í þessari skýrslu er brýn umfjöllun um fjármálastöðugleikann og mikilvægi þess að setja um hann ramma, löggjöf til framtíðar, vegna þess að staðreyndin er eins og við höfum fundið á eigin skinni á undanförnum árum að fjármálastöðugleikinn skiptir ekki bara máli fyrir fjármálamarkaðinn í þrengstu merkingu heldur skiptir hann máli fyrir afkomu heimila og atvinnulífs í landinu öllu. Í þessu sambandi er mikilvægt að hafa í huga það sem má kannski kalla hið fornkveðna að markaðurinn, fjármálamarkaðurinn eins og markaðurinn að öðru leyti, eigi að vera þjónn en ekki herra. Hann má ekki stýra því hvernig við skipuleggjum mál okkar til framtíðar heldur á hann að vera tæki og setja þarf um hann reglur og umgjörð til að hann fari ekki úr böndunum. Það mega sem sagt ekki allir leika lausum hala í framtíðarfyrirkomulagi fjármálamarkaðarins heldur verður að setja stranga löggjöf sem tekur mið af þeim markmiðum sem við viljum setja okkur hvað varðar starfsemi á fjármálamarkaði.

Ég tel að hugmyndir um að setja löggjöf um fjármálastöðugleika og stöðugleikaráð séu góðar. Við vitum það að sjálfsögðu og það hefur komið fram hjá ýmsum í þessari umræðu að kreppur koma og fara. Sú kreppa sem við upplifðum hér er ekki sú fyrsta og ekki sú síðasta þó að hún hafi sannarlega verið ansi kraftmikil svo ekki sé meira sagt og haft miklar afleiðingar í för með sér fyrir allt efnahagslíf okkar.

Ég vil sérstaklega nefna hugmyndir sem reifaðar eru í skýrslunni og hafa staðið upp úr öðrum hverjum manni eða fleirum í þessari umræðu og varða aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbanka. Við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði höfum lengi verið þeirrar skoðunar og flutt þingmál á undanförnum árum þar sem sú stefnumörkun hefur verið sett fram. Ég tel þess vegna mikilvægt að unnið verði að því og hvet til þess að það verði gert, farið verði rækilega yfir þau rök sem standa til þess að skilja að fjárfestingarbankastarfsemi og viðskiptabankastarfsemi, og get tekið undir með ýmsum sem hafa sagt að skýrslan er ekki afdráttarlaus hvað þetta snertir, því miður. Formbreytingin ein og sér er ekki nægileg. Það verður að sjálfsögðu að hafa í huga að hægt yrði að fara í kringum slíka formbreytingu ef ekki fylgdu nægilega skýrar reglur í því efni. Ég tel mikilvægt að farið verði yfir leiðir sem aðrar þjóðir hafa farið í þessu efni, sett verði skýr markmið um hvað við viljum nákvæmlega og hvað við meinum nákvæmlega með þessum aðskilnaði, t.d. að menn geti ekki í gegnum fjárfestingarlánastarfsemi velt byrðum yfir á almenna innlánseigendur. Það er auðvitað það sem málið snýst um og það kunna að vera fleiri leiðir en ein færar.

Ég vil líka nefna gjaldmiðilsmálin sem eru stuttlega reifuð í skýrslunni, m.a. á bls. 94. Þar er þegar í gangi vinna á vegum efnahags- og viðskiptaráðherra með fulltrúum allra stjórnmálaflokka við að skoða leiðir og framtíðargjaldmiðil fyrir Ísland. Ég tel mikilvægt að þeirri vinnu vindi hratt og vel fram og hægt verði að skila einhverjum tillögum til ráðherra um mitt ár vonandi eða síðsumars. Gjaldeyrishöftin koma þar að sjálfsögðu til skoðunar. Í skýrslunni eru reifaðar nokkrar hugmyndir varðandi skattlagningu á fjármálafyrirtæki og því hlýtur skattlagning í tengslum við afnám gjaldeyrishafta að koma til umfjöllunar.

Verðtryggingin hefur verið nefnd sérstaklega. Ég hef alla tíð verið þeirrar skoðunar að það eigi að afnema verðtryggingu en ég vil samt segja að þegar bankakerfið er að bjóða óverðtryggð lán sem það getur sjálft skammtað sér réttinn til að hækka vexti á með jöfnu millibili þá felst í því ákveðin verðtrygging fyrir bankakerfið og að því þarf að huga. Það má ekki afnema verðtrygginguna að nafninu til ef hún er síðan til staðar í reynd með öðrum hætti.

Þetta ætla ég að láta nægja, virðulegur forseti, í þessari umræðu. Að sjálfsögðu hefði verið tilefni til að flytja hér miklu lengra mál. Ég hvet til þess að efni skýrslunnar verði tekið til gaumgæfilegrar skoðunar í efnahags- og viðskiptanefnd.