ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa ræðu. Það sem hún fór yfir var mjög athyglisvert varðandi eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Í tillögum þessum virðist hafa gleymst að fara yfir þann þátt eignarréttarins sem snýr að mannréttindasáttmála Evrópu. Það vill svo til að mannréttindakafli stjórnarskrár okkar sem var settur 1995 byggir að mestu leyti á mannréttindasáttmála Evrópu sem var farinn að hafa réttarlegt gildi hér á landi vegna dómaframkvæmda erlendis.
Eins og allir vita geta Íslendingar skotið málum er lúta að mannréttindum til Mannréttindadómstóls Evrópu ef þeir eru ekki sáttir við úrskurð Hæstaréttar. Mig langar því að spyrja þingmanninn: Væri það ekki ankannalegt að breyta mjög þessari lagagrein stjórnarskrárinnar ásamt öðrum mannréttindagreinum stjórnarskrárinnar í þá átt að færa frelsið yfir á íslenska stjórnskipan þannig að lagareglur okkar gengju langtum lengra en nokkurn tímann hjá þeim þjóðum sem við berum okkur saman við? Þá er ég að tala um þær þjóðir sem standa að mannréttindasáttmála Evrópu.
Svo höfum við litið til fleiri mannréttindasáttmála, eins og mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna, barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna o.fl. Getur hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir útskýrt það hér á tveimur mínútum hvað það þýðir í íslenskri dómaframkvæmd ef mannréttindakafli okkar verður mun víðtækari en hjá þeim þjóðríkjum sem við berum okkur saman við?