140. löggjafarþing — 104. fundur,  21. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[22:00]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S):

Frú forseti. Ég vil láta þess getið vegna þeirrar umræðu sem nokkuð hefur orðið vart við undanfarna daga, að stjórnarandstaðan haldi uppi umræðunni um þetta mál í þinginu, að vitaskuld söknum við þess að stjórnarliðar taki ekki betur þátt í umræðunni. Þá er það kannski ekki síst vegna þess að nú finnst mörgum eins og verið sé að halda einhverju máli frá þjóðinni þannig að þjóðin fái ekki að segja neitt um stjórnarskrána vegna þess sem stjórnarandstaðan er að berjast fyrir á þinginu.

Ég vil meina að þetta sé í raun fullkominn misskilningur vegna þess að það sem hér er lagt til að verði borið undir þjóðina er ekki annað en ófullburða drög að stjórnarskrá. Niðurstaðan getur aldrei orðið neitt annað en einhvers konar vísbending um það hvað það er sem þjóðin vill í þessum efnum.

Það sem er æpandi í þessu máli er að málinu hefur verið haldið frá þinginu. Þeir sem hafa ráðið för í stjórnarmeirihlutanum hafa markvisst forðast efnislega umræðu um þörfina fyrir breytingar á stjórnarskránni og í hverju þær eiga að liggja. Ég get tekið sem dæmi eitt afmarkað efni sem er þó risastórt og varðar hugtakið þjóðareign. Stjórnlaganefndin sem komið var á fót áður en stjórnlagaráðið var kosið af meiri hluta þingsins hafði komið fram með tillögur að breytingum á stjórnarskránni, eiginlega valkosti fyrir stjórnlagaráðið til að vinna með. Meðal þess sem stjórnlaganefnd setti fram var ný stjórnarskrárgrein þar sem fjallað var um hugtakið þjóðareign í stjórnarskrá. Þegar stjórnlagaráðið sem meiri hlutinn kaus sér tók þessa sömu grein til skoðunar í sinni vinnu breytti það algerlega efnislegu inntaki greinarinnar þannig að stjórnlagaráðið vildi að hugtakið þjóðareign vísaði fyrst og fremst til ríkiseignar, það væri sem sagt tenging við eignarréttarlega hugtakið í greininni þannig að ríkið færi með einhvers konar eignarréttarleg yfirráð yfir öllum auðlindum á Íslandi sem ekki væru þá þegar komnar í einkaeigu á meðan stjórnlaganefnd vísaði til ákveðinnar hugmyndafræði um að ríkið gæti sett lög og reglur um sjálfbæra nýtingu þessara auðlinda og að nýta bæri þær með sjálfbærum hætti þjóðinni allri til heilla. Þarna eru framkomnar, annars vegar hjá stjórnlagaráðinu og hins vegar hjá stjórnlaganefndinni, tvær gjörólíkar nálganir á hugmyndina um þjóðareign sem hugtak og sem efnisgrein í nýrri stjórnarskrá.

Engu að síður er það svo að í því þingmáli sem við erum að ræða í dag er lagt til að það verði borið undir þjóðina í sérstakri grein hvort þjóðin vilji að náttúruauðlindir séu lýstar þjóðareign í stjórnarskránni. Þá spyr ég: Hvort er átt við þjóðareign með það efnisinntak sem stjórnlaganefndin lagði upp með eða þjóðareign sem einhvers konar ríkiseign eins og stjórnlagaráðið gengur út frá í sínum tillögum? Fáum við einhvern botn í það með því að leggja spurninguna fyrir þjóðina eins og gert er í þessum tillögum? Nei, það er alveg ábyggilegt, alveg víst, að tekist verður á um það á þinginu í framhaldi af atkvæðagreiðslunni, fari hún fram, hvora leiðina menn eigi að leggja upp með þannig að best verði fylgt eftir vilja þjóðarinnar. Þetta er einungis eitt lítið dæmi sem hefði verið gott að geta átt orðastað um við talsmenn þessarar tillögu en þeir láta ekki sjá sig í umræðunni.