ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Virðulegur forseti. Sú hætta sem hv. þingmaður lýsti blasir við. Það er ekki nema von að hv. þingmaður spyrji hvort það sé nokkurt gagn í því eða einhver von í því fólgin að reyna að laga þetta ferli eða hafa jákvæð áhrif á það. Þegar maður lítur yfir farinn veg, hvernig að þessu hefur verið staðið, en ekki síður til þeirrar ástæðu sem hefur legið þessu til grundvallar, ástæðunnar fyrir því að þetta er rekið fram með þeim hætti sem raunin er og snýst eins og menn þekkja fyrst og fremst um pólitísk hrossakaup og stöðu ríkisstjórnarinnar frekar en málið sem slíkt, er ekki að undra að hv. þingmaður velti fyrir sér hvort hægt sé að gera á þessu einhverja bót. Mér fannst skylda mín að reyna að laga það vegna þess að við erum hér að fjalla um sjálfa stjórnarskrána og ef það verður ofan á að farið verður af stað í þessa vegferð, sem að sögn 1. flutningsmanns tillögunnar snýst um að kanna hug almennings til þeirrar hugmyndafræði sem eigi að leggja til grundvallar breytingu á stjórnarskrá, er það dálítil bót í máli finnst mér að spyrja að minnsta kosti um þessi grundvallaratriði. Annars stendur ósköp lítið eftir annað en þær spurningar sem stjórnarmeirihlutinn hefur lagt fram og eru að mínu mati fyrst og fremst til þess hannaðar að gefa ríkisstjórninni það sem ég kallaði opinn tékka, þ.e. að fá einhver svör við mjög óljósum spurningum en útfæra síðan sínar eigin tillögur og halda því fram að þær séu grundvallaðar á svörunum við hinum óljósu spurningum. Þess vegna er spurt svona óljósra spurninga, til þess að fá svör við þeim, koma síðan með útfærsluna sem skiptir auðvitað öllu máli en því verði svo haldið fram að það sé gert í samræmi við niðurstöðu þessarar könnunar.