140. löggjafarþing — 104. fundur,  21. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[22:41]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og ég kom inn á í andsvari við hv. þm. Ólöfu Nordal áðan er hættan einmitt sú að ef menn setja það fordæmi að breyta stjórnarskránni hugsanlega með naumasta meiri hluta og grundvalla það á könnun þar sem spurt var jafnvel villandi spurninga, a.m.k. mjög óljósra spurninga, setur það alla framtíð stjórnarskrárinnar í uppnám. Þá er ekki lengur til staðar sú samstaða sem hefur verið ríkjandi í samfélaginu alveg þangað til núverandi ríkisstjórn tók við um að stjórnarskráin ætti að lýsa því sem sameinar okkur meira og minna öll. Það held ég að væri mjög hættuleg þróun.

Því miður er þetta bara nýjasta dæmið í vegferð þessarar ríkisstjórnar sem hefur markast ekki hvað síst af því að keyra mál í gegn í andstöðu við allt og alla, ekki hvað síst sérfræðinga sem um þau fjalla, gera enga tilraun til að mynda samstöðu um nokkurn hlut heldur fara áfram með allt saman af einhvers konar þjösnaskap. Þetta er í senn undarlegt og dapurlegt á þessum tímum þar sem við hefðum alveg sérstaklega þurft á samstöðu og samvinnu að halda.

Í kosningabaráttunni áður en núverandi ríkisstjórn tók við gekk Samfylkingin til kosninga undir því kjörorði að það þyrfti breytta verkstjórn, það þyrfti verkstjórn núverandi hæstv. forsætisráðherra. Því miður hefur sú verkstjórn öll gengið út á það að þvinga mál í gegn án nokkurs samráðs, án almennilegrar undirbúningsvinnu (Forseti hringir.) og jafnvel í andstöðu við alla sérfræðinga. Afraksturinn er sú staða sem við erum í nú þremur árum eftir efnahagshrunið.