ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Virðulegur forseti. Sú tillaga sem hv. þingmaður fjallaði um í ræðu sinni hefur eins og þingmaðurinn benti réttilega á lítið komið til umfjöllunar í umræðunni um þessa þingsályktunartillögu. Tek ég undir með þingmanninum að það hefði að ósekju mátt vera meiri umræða um hana, sérstaklega í ljósi þess að við heyrum hér nánast daglega stjórnarþingmenn lýsa andstöðu sinni við aðildarferlið, lýsa andstöðu sinni við það að við eigum í þessum viðræðum, og eins og hæstv. innanríkisráðherra sagði í dag þá er þetta kannski vitlausasti tíminn til að sækja um Evrópusambandið. Frú forseti. Þú fyrirgefur, klukkan er farin að halla í tólf og ég man ekki nákvæmlega hvernig þessi tilvitnun var, en ég veit að hv. þingmaður áttar sig á hvað ég er að fara.
Spurning mín til þingmannsins er því sú: Hvernig metur hann þessa breytingartillögu, telur þingmaðurinn að það sé kominn meiri hluti fyrir henni í þingsal? Er ekki svo? Miðað við hvernig fólk hefur talað hér ætti að vera augljóst að meiri hluti þingsins styður þessa tillögu, ekki um að draga umsóknina til baka, heldur að leyfa þjóðinni, fyrst áform eru um að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu, að segja skoðun sína á því hvort halda eigi þessu ferli áfram eða ekki.