störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég vil eiga orðaskipti við hv. þm. Baldur Þórhallsson. Ásamt því að vera hv. þingmaður Samfylkingarinnar hefur hann getið sér gott orð á öðru sviði. Ég vil spyrja hv. þingmann út í þætti sem ég veit að hann þekkir mjög vel. Spurningarnar vísa í umræðu um stjórnlagaráðstillögurnar, það þingmál sem hv. stjórnarþingmenn hafa því miður ekki tekið þátt í. Þess vegna verð ég að fara svolítið óhefðbundnar leiðir til að fá svör við spurningum mínum. Þær eru þessar:
Telur hv. þingmaður að þær spurningar sem leggja á fyrir þjóðina séu skýrar? Telur þingmaðurinn að allir skilji þær á sama veg? Telur þingmaðurinn að þær uppfylli þau skilyrði sem gerð eru til spurninga í skoðanakönnunum?
Ég þekki engan, hvorki sérfræðinga á þessu sviði né almenna leikmenn sem svara þessum spurningum játandi og ég ætla hv. þingmönnum ekki að svara þeim játandi. Ef svo færi, af því að við höfum séð ýmislegt í þinginu, að hv. þingmaður mundi svara þessum spurningum játandi, sem væri auðvitað mikil frétt ef fræðimaður á þessu sviði mundi gera það, fer ég þess vinsamlegast á leit við hv. þingmann að hann taki þátt í umræðum í framhaldinu og svari þeim spurningum sem upp koma einmitt varðandi þennan þátt málsins og auðvitað væri betra ef fleiri tækju þátt. Ég þekki engan sem svarar þessum spurningum játandi, engan. Það þýðir að það verða mikil vandkvæði við framkvæmd þessara skoðanakönnunar ef hún fer fram eins og þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir.