störf þingsins.
Frú forseti. Ég efast ekki um að forseti getur brugðist skjótt við ósk okkar í utanríkismálanefnd Alþingis um að efna til umræðu um stöðu aðildarumsóknar að Evrópusambandinu í ljósi þess að meiri hluti nefndarinnar er þeirrar skoðunar að hleypa þurfi þjóðinni að ákvörðun um framhald málsins. Það vekur reyndar aftur upp umræðuna sem við tókum á sínum tíma um inntak og eðli þess að klára viðræðurnar og halda þjóðaratkvæðagreiðslu í framhaldinu vegna þess að á meðan ekki er meiri hluti fyrir aðildarsamningi að Evrópusambandinu getur þjóðaratkvæðagreiðsla um það efni aldrei orðið annað en ráðgefandi, hún getur ekki ráðið málum til lykta. Það er sá veruleiki sem blasir við mönnum.
Eftir orð hæstv. innanríkisráðherra, sem féllu fyrir nokkrum dögum, eftir þau orð sem hv. þm. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir hefur látið falla, eftir orð margra annarra stjórnarliða, er alveg augljóst að á þinginu er ekki meiri hluti. Hvað sem kæmi út úr þjóðaratkvæðagreiðslu eftir að aðildarsamningurinn væri fenginn þá blasir við að ekki er lengur meiri hluti á Alþingi. Við þeirri stöðu verða stjórnarliðar að bregðast, það verður ekki hjá því komist.
Það stendur líka upp á stjórnarliða sem tala fyrir því að haldið sé áfram eins og ekkert hafi í skorist að svara því hvers vegna ekki er kominn botn í þessar stóru spurningar. Hér er sagt að þjóðin eigi að fá tækifæri til að taka upplýsta afstöðu til samningsins en hvers vegna er það að Íslendingar eru búnir að vera lengst allra EFTA-ríkja í viðræðum við Evrópusambandið um niðurstöðu í þessu máli? Hvers vegna hefur engin önnur þjóð þurft jafnlangan tíma og við Íslendingar og við erum ekki einu sinni byrjuð að opna sjávarútvegskaflann, kaflann sem þó átti að vera í forgangi, til dæmis að mati hæstv. ráðherra Steingríms J. Sigfússonar. (Forseti hringir.)
Þetta er allt saman að gerast á ábyrgð og (Forseti hringir.) undir forustu núverandi ríkisstjórnar sem ég vonast til að við getum átt orðastað við hér, geti forseti orðið við ósk okkar um sérstaka umræðu um stöðu aðildarviðræðna við fyrsta tækifæri.