140. löggjafarþing — 105. fundur,  22. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[15:21]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek undir áhyggjur hv. þingmanns af því hvar þetta mál er statt, hvernig vinnunni hefur verið háttað og hvernig ætlunin er að halda henni áfram sem og áhyggjur af því hversu óskýrar þær spurningar eru sem lagt er upp með.

Eftir að Hæstiréttur hafði fellt úr gildi kosningu til stjórnlagaþings ákvað Alþingi samt að skipa þá einstaklinga og þá var fyrsta skrefið stigið í þá átt að vinna þetta mál ekki með þeim hætti eins og eðlilegast hefði verið að gera.

Varðandi þær spurningar sem lagðar eru til grundvallar og hv. þingmaður rakti hér, bæði aðalspurninguna og síðan kom hv. þingmaður inn á eina af undirspurningunum, varðandi auðlindir í þjóðareign, er mjög erfitt að átta sig á því hvernig eigi að vinna með svörin í framhaldinu. Það hefði verið mjög eðlilegt að spurningarnar hefðu verið skýrar orðaðar, bæði undirspurningarnar og hinar, og jafnvel gefinn möguleiki á því, eins og sumar breytingartillögur hafa verið lagðar fram, að spyrja þjóðina hvort hún vildi hafa núgildandi stjórnarskrá til hliðsjónar eða jafnvel hafa óbreytta stjórnarskrá. Það hefði verið eðlilegra.

Varðandi þá spurningu sem hv. þingmaður kom að um náttúruauðlindir í þjóðareign hef ég rakið í fyrri ræðum hversu loðið það orðalag er og hversu erfitt sé í raun að vinna með niðurstöðurnar, sama hvort það verður já eða nei. Þegar ég velti upp orðalagi á þessum spurningum er það ekki (Forseti hringir.) í þeim tilgangi að vera á móti því að stærstu auðlindir þjóðarinnar séu í þjóðareign. Það er ekki með þeim hætti (Forseti hringir.) en þetta verður að vera skýrar orðað og það er því miður ekki í þeim tillögum sem lagðar eru fram hér.