140. löggjafarþing — 105. fundur,  22. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[15:24]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S):

Virðulegi forseti. Ég hef í fyrri ræðum mínum talað efnislega um drög stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá en það hefur verið meira byggt á heimspekilegum grunni um það hvaða hlutverki stjórnarskrá eigi að þjóna, til hvers hún sé og hvernig mitt álit er að stjórnarskrá eigi að mynda sáttmála borgaranna og vera grunnlög allra laga sem þjóðfélagið byggir á. Ég hef jafnframt lýst því að ég telji þessi drög, eins og þau líta út í dag, þynna út þau réttindi sem borgararnir eiga að njóta og það varpar skugga á þau mikilvægu réttindi sem þróast hafa frá upplýsingunni og gerir að verkum að hin raunverulegu réttindi sem við öll erum sammála um að eigi heima í stjórnarskrá, málfrelsi, kosningafrelsi, verndun eignarréttar og annað slíkt, komast ekki til skila.

Það er eitt sem ég sakna í þessum drögum, það að ekki er tekist á við hluti sem nokkrar þjóðir hafa leitt í stjórnarskrár sínar og eru mjög mikið í umræðunni, sérstaklega eftir fjármálahrunið sem hófst 2007, það að setja ríkisvaldinu einhvers konar skorður á skuldasöfnun. Skuldasöfnun hins opinbera hefur leitt margar þjóðir í mikinn vanda. Sumir voru þeirrar skoðunar að ný stjórnarskrá ætti að koma í veg fyrir að hlutir sambærilegir þeim sem gerðust hér á Íslandi 2008 gætu endurtekið sig. Ég tel ómögulegt að koma í veg fyrir það en aftur á móti er hægt að minnka líkurnar.

Þjóðir eins og Þjóðverjar og Svisslendingar hafa sett í stjórnarskrár sínar að ekki megi reka hið opinbera með halla nema undir einhverjum skilyrðum sem eru mjög ströng og krefjast þá aukins meiri hluta þings þjóðanna. Jafnframt eru nokkur fylki í Bandaríkjunum sem hafa innleitt slíkar reglur. Við sjálfstæðismenn höfum lagt fram á Alþingi tillögu að fjármálareglu þar sem gert er ráð fyrir því að til þess að styðja betur við peningamálastjórnina og til þess að hafa agaðri fjármálastjórn eigi að hefta hversu mikið útgjöld geta vaxið. Reyndar er tæknilega gert ráð fyrir því að útgjöld eigi að vaxa um sem nemur langtímahagvexti. Það kemur í veg fyrir að þjóðir safni endalaust skuldum eða ríkið eins og vill verða tilhneigingin og hefur komið þjóðum eins og Grikkjum í koll sem og fleiri þjóðum í Suður-Evrópu.

Það er á engan hátt tekið á þessu í þessari stjórnarskrá og það er sérstakt að nýjustu straumar í stjórnarskrárgerð hafi ekki ratað inn til stjórnlagaráðs. Það virðist ekki á neinn hátt hafa verið gert ráð fyrir því að við ættum að festa hagstjórnina meira í sessi eins og gert er ráð fyrir í þingsályktunartillögu okkar sjálfstæðismanna. Þar er einmitt talað um þann möguleika að festa slíka reglu í stjórnarskrá.