ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Frú forseti. Það þykir ekki eðlilegt að halda nefndarfundi meðan á þingfundi stendur og mér finnst það horfa eins við þegar heilu flokkarnir halda þingflokksfundi. Hins vegar hefur þátttaka stjórnarliða í umræðunni ekki verið þess eðlis að það breyti neitt voðalega miklu, þeir vilja greinilega ekki og geta kannski heldur ekki rætt tillögu stjórnlagaráðs efnislega. Til þess þurfa menn að setja sig inn í málið, bera saman núverandi stjórnarskrá og nýju hugmyndirnar og fara í gegnum þá umræðu sem fór fram í stjórnlagaráði. Það er kannski skýringin á þessu eða bara almennt áhugaleysi á stjórnarskránni sem ég vona að sé ekki.
Ég styð það, í þeirri veiku von að hv. stjórnarþingmenn taki einhvern efnislegan þátt í umræðunni, að þingfundi verði slitið og gef þeim tækifæri til þess.
(Forseti (RR): Forseti hyggst nú fresta fundi í 5 mínútur.)