ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Virðulegi forseti. Ég kem upp til að gera athugasemd við orð hv. þm. Álfheiðar Ingadóttur um hvernig þingmenn eru sagðir starfa hér. Það er búið að fara yfir 20 til 30 breytingartillögur sem liggja fyrir, það er búið að fara efnislega yfir megnið af tillögum stjórnlagaráðs en ég veit ekki til þess að hv. þm. Álfheiður Ingadóttir eða nokkur annar þingmaður stjórnarliðanna hafi blandað sér í þær umræður, lýst skoðun sinni á þessum tillögum, lýst skoðun sinni á einstökum greinum stjórnlagaráðs, hvort þær gangi upp, hvort menn eru almennt sammála þeim öllum eða engum. Það hlýtur að vera krafa okkar þegar við ræðum eins stórt málefni og stjórnarskráin er að menn komi og ræði við þá sem hafa áhuga á að blanda sér í umræðuna og komi með athugasemdir, að þingmenn sem hafa einhvern einasta áhuga á stjórnarskránni segi sína skoðun. Hver er til dæmis skoðun hv. þingmanns á þeim breytingartillögum sem hér hafa komið fram eins og að spyrja þjóðina um Evrópusambandið? Finnst hv. þingmanni (Forseti hringir.) ekki eðlilegt að slíkt komi fram? Við erum að ræða það hér, flestir þingmenn, efnislega um einstaka tillögur.