140. löggjafarþing — 106. fundur,  24. maí 2012.

störf þingsins.

[10:33]
Horfa

Lilja Mósesdóttir (U):

Virðulegi forseti. Í maí 2009 samþykkti ég að sótt yrði um aðild að ESB til að kanna hvort hægt væri að fá aðstoð sambandsins við að leysa krónukreppuna. Á þessum tíma var áætlað að umsóknarferlið mundi taka eitt og hálft ár. Nú eru liðin þrjú ár og hvorki bólar á aðstoð ESB við afnám gjaldeyrishaftanna né aðild að samningi. Það sem verra er, ESB-umsóknin er orðin dragbítur á endurreisnina. Allt er sett í bið. Skuldavandinn er óleystur vegna þess að verið er að bíða eftir lágum vöxtum ESB. Ekkert er gert til að minnka snjóhengjuna þar sem upptaka evrunnar á að töfra hana í burtu. Á meðan stækkar snjóhengjan vegna stöðugra vaxtahækkana Seðlabankans.

Frú forseti. Eigendur snjóhengjunnar vilja hvorki fara út með miklum afföllum né binda fé sitt innan lands til langs tíma. Þeir vita að ríkisstjórnin stefnir á ESB-aðild og þá verður hægt að fara út á hagstæðu evrugengi með aðstoð Evrópska seðlabankans. Á meðan aðildarumsóknin dregst á langinn stækkar snjóhengjan og veldur viðvarandi gengislækkun og verðbólgu sem magnar upp hættuna á fjöldagjaldþrotum fyrirtækja og heimila.

Frú forseti. Ég skora á þingheim að samþykkja að þjóðin fái að kjósa um hvort halda eigi áfram með aðildarumsóknina. Þjóðaratkvæðagreiðsla í haust mun þrýsta á niðurstöðu í aðildarumsóknarferlinu.