140. löggjafarþing — 106. fundur,  24. maí 2012.

störf þingsins.

[10:58]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegur forseti. Það er áhugavert að fylgjast með taugaveiklun stjórnarliða í sambandi við þá atkvæðagreiðslu sem fer fram á eftir. Mér þótti ræða hv. þm. Árna Þórs Sigurðssonar alveg sérstaklega athyglisverð. Í ljós kemur að það eru þrjár skoðanir í Vinstri grænum um það hvernig eigi að halda á Evrópusambandsmálinu. Að greiða atkvæði um samning þegar samningur liggur fyrir er skoðunin sem hv. þm. Árni Þór Sigurðsson talaði fyrir. Að greiða atkvæði strax, sem fyrst, hefur hv. þm. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir talað fyrir og bókað um í hv. utanríkismálanefnd. Síðan er það skoðun hæstv. innanríkisráðherra: Drífa í að klára samning, hvernig sem hann lítur út, og greiða um hann atkvæði á þessu kjörtímabili.

Þetta eru þrjár mismunandi skoðanir á sama málinu.

Förum aðeins yfir skoðun hv. þm. Árna Þórs Sigurðssonar, það má ekki taka valdið af þjóðinni og réttinn til að greiða atkvæði um samning þegar hann liggur fyrir, annars verður ófriður. Um hvað erum við að fara að greiða atkvæði á eftir? Um ófullburða plagg um sjálfa stjórnarskrána. Þá er allt í lagi að greiða atkvæði um eitthvað sem er hvergi nærri komið á endapunkt. Það er bara stjórnarskráin sem við erum að ræða um! Á sama tíma á að setja sérfræðinga í að skoða hvernig þessar tillögur eru. Ríma þær saman? Standast þær? Eru þær grunnur að stjórnarskrá? Þetta á að fara fram samhliða því að þjóðaratkvæðagreiðsla um þetta plagg er undirbúin.

Nei, frú forseti, lýðræðisástin sem talsmenn þessarar aðferðar í stjórnarskrármálinu predika hér, lýðræðisástin sem stendur upp úr öllum þegar talið berst að tillögum stjórnlagaráðs, er lýðskrum af versta tagi. (Forseti hringir.) Ef menn vilja láta þjóðina segja sína skoðun á þessu, fínt, þá skulu menn gera það, en ég vek athygli á því að landskjörstjórn (Forseti hringir.) var að úrskurða um að ekkert sé því til fyrirstöðu að setja ESB-spurninguna með. Sjáum hvernig lýðræðisástin er í raun og veru. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)