140. löggjafarþing — 106. fundur,  24. maí 2012.

störf þingsins.

[11:01]
Horfa

Magnús Orri Schram (Sf):

Virðulegi forseti. Við sjáum það á öllum lykiltölum efnahagslífsins að viðspyrna er komin í íslenska atvinnulífið. Í nýrri hagvaxtarspá Seðlabankans er spáð 2,5% hagvexti á þessu ári, 2,8% á því næsta og 2,7% 2014.

Samkvæmt Vinnumálastofnun var 6,5% atvinnuleysi í landinu í apríl 2012. Það var 9,1% 2010 og 9% 2011. Væntingavísitala Capacent Gallup sýnir að Íslendingar eru bjartsýnni hvað varðar ástand efnahagsmála. Þjóðarkakan stækkaði um 3,1% á síðasta ári, einkaneysla jókst um 4% og fjárfesting um 13,4%. Kaupmáttur launa hefur aukist um 5,1% síðasta árið og uppgjör ríkissjóðs fyrir 2011 er betra en gert var ráð fyrir.

Tekjur jukust um 6,3 milljarða og gjöld drógust saman um 5,5 milljarða. Fjárlagahallinn sem var 216 milljarðar þegar vinstri og jafnaðarmenn tóku við varð 140 milljarðar 2009, 120 milljarðar 2010, 46 milljarðar á síðasta ári og er áætlaður um 20 milljarðar á þessu ári. Skuldatryggingarálag ríkissjóðs er 250 stig sem er nálægt meðaltali Evrópuríkja en var rúmlega 1100 þegar mest var.

Sem sagt, virðulegur forseti, viðspyrna er komin í íslenskt atvinnulíf. Eitt er þó meinið og það eru gjaldeyrishöftin. Þess vegna var sérstaklega ánægjulegt að lesa Morgunblaðið í morgun og sjá grein eftir stækkunarstjóra ESB en þar segir, með leyfi forseta:

„Ísland hefur lagt á sig sársaukafullar og mikilsverðar byrðar til að jafna sig á efnahagserfiðleikunum og er á góðri leið með að standast þær þrautir sem bíða enn. Ein þeirra er að losna við gjaldeyrishöftin um leið og hægt er. Við höfum orðið sammála um, ásamt íslenskum yfirvöldum, að setja á fót vinnuhóp til að meta stöðu mála og möguleikana á því að aflétta gjaldeyrishöftunum …“

Þetta eru ánægjuleg tíðindi, virðulegi forseti, og sýna kannski hvað best hversu vond hugmynd það er að hætta við aðildarviðræður við Evrópusambandið. (VigH: Æ!)