ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Hæstv. forseti. Ég trúi því að þeir sem fylgjast með atkvæðagreiðslu og atkvæðaskýringum inni á þingi eigi orðið erfitt með að átta sig á því út á hvað þessi atkvæðagreiðsla gengur. Mér finnst mikilvægt að við höldum okkur við þá atkvæðagreiðslu sem hér fer fram, þ.e. um tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga. Stjórnlagaráðið og tillögurnar fjölluðu ekkert um aðild okkar eða umsóknarferli að Evrópusambandinu.
Ef hv. þm. Vigdís Hauksdóttur sem flytur breytingartillöguna hefði viljað fá afstöðu þingsins í dag til aðildarumsóknarinnar hefði átt að koma fram sérstök þingsályktunartillaga þannig að kosið væri um tvær tillögur í dag og tvær tillögur við næstu þjóðaratkvæðagreiðslu. (Gripið fram í.) Það væri samkvæmt þeirri hugmyndafræði sem lá að baki (Forseti hringir.) tillögu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um að kjósa samhliða næstu forsetakosningum. Það yrðu þá tvær atkvæðagreiðslur; (Forseti hringir.) forsetakosning og um þá þingsályktunartillögu sem við erum að afgreiða núna. (Gripið fram í.) Tvær. (Gripið fram í: Af hverju …?)
Ég segi nei.