ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Frú forseti. Stjórnarskráin er ekki fyrir Alþingi þó að Alþingi sé stjórnarskrárgjafinn sem er háður samþykki þjóðarinnar með óbeinum hætti í þingkosningum. Stjórnarskráin er þaðan af síður fyrir stjórnmálaflokkana. Stjórnarskráin er ein af dýrmætustu sameignum þjóðarinnar. Það er þannig. Það að taka þjóðina með og nær í þetta ferli er sjálfgefið og sjálfsagt mál, jafnvel þó að okkar gamla stjórnarskrá geri ekki ráð fyrir slíkum aðferðum við breytingu á henni. (Gripið fram í: Brot á stjórnarskránni.)
Ég sé það gjarnan fyrir mér að í 1. gr. nýrrar stjórnarskrár standi: Allt vald kemur frá þjóðinni. (Gripið fram í.) Hún gæti byrjað þannig. Því ekki að taka þá þjóðina með? (Gripið fram í.) Ég vil bæta við að jafnvel þó að þessi ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram er ekkert sem kemur í veg fyrir að þjóðin komi aftur að málinu og kjósi sjálfstætt um þá nýju stjórnarskrá sem (Forseti hringir.) Alþingi hefði þá samþykkt og áður en hún yrði samþykkt á Alþingi í hið síðara sinn. Ég fagna þeirri niðurstöðu sem vonandi er að verða í dag og greiði (Forseti hringir.) þessari tillögu að sjálfsögðu atkvæði.