140. löggjafarþing — 106. fundur,  24. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[13:12]
Horfa

Jón Bjarnason (Vg):

Frú forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um hvort tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá og síðan gefnir svarmöguleikar já eða nei. Mjög rækilega hefur verið bent á það í umræðunum að tillögur stjórnlagaráðs, 114 eða 115, eru mótsagnakenndar og margar ekki vel unnar efnislega. Ég hef áður bent á að mér finnst halla á landsbyggðina hvað það varðar. En það sem ég hnýt sérstaklega um er að berlega er gerð tillaga um að þjóðin geti ekki kallað eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um þjóðréttarskuldbindingar. Ég er því mjög ósammála af því að ég treysti þjóðinni og hún hefur rétt til að kalla eftir þjóðaratkvæðagreiðslum, ekki hvað síst um þjóðréttarskuldbindingar. Hvað höfum við? Icesave, ESB o.s.frv. Ég vil að þessi réttur þjóðarinnar sé (Forseti hringir.) alveg ótvíræður (Gripið fram í: Heyr, heyr.) í nýrri stjórnarskrá. Þarna er einmitt gert ráð fyrir að svo sé ekki. Því er ég ekki sammála, frú forseti, set því þessa fyrirvara og greiði þessu ekki atkvæði.