ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Virðulegur forseti. Ég vil draga fram að sú spurning sem við erum nú að greiða atkvæði um er afar heppileg í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún hentar mjög vel. Það yrði mjög gott ef við fengjum skýrar leiðbeiningar frá þjóðinni um þetta mál og það er vegna þess að þingmenn, því miður en kannski eðli málsins samkvæmt, hafa mikilla persónulegra hagsmuna að gæta við vægi atkvæða. Vægi atkvæða hefur talsvert mikil áhrif á möguleika sitjandi þingmanna að ná endurkjöri. Það sjá allir og þess vegna er mjög heppilegt að svona spurning fari til þjóðarinnar þannig að við fáum þá leiðbeiningar um hvað þjóðin vill hvað varðar vægi atkvæða. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)