140. löggjafarþing — 106. fundur,  24. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[14:12]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Hér er rætt um 6. töluliðinn og ég þarf svo sem ekki að endurtaka það sem hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson fór yfir um skýrleika spurningarinnar. Ég get tekið undir hvert orð þar. En mig langar að benda á að nú erum við að fjalla um 6. og síðustu spurninguna sem meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar leggur til að verði bornar upp. Þá kviknar spurningin: Hvers vegna eru þetta þessar sex spurningar en ekki aðrar? Hvers vegna er ekki spurt um málskotsrétt forseta? Hvers vegna er ekki spurning á þessum lista um framsal ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana? Hv. þingmenn sem standa að þessari tillögu hafa lýst því yfir að þetta séu helstu álitamálin sem að þeirra mati liggja fyrir íslenskri þjóð og hafa verið að veltast í umræðunni. Ég er einfaldlega ósammála því. Ég tel að það vanti margt inn á þennan lista. Í þessu kristallast í raun (Forseti hringir.) sá vandi að menn eru fyrir fram búnir að gefa sér hvernig þessi atkvæðagreiðsla muni fara. (Forseti hringir.) Aðalmálið er að það hefði þurft að fara fram efnisleg umræða í þinginu (Forseti hringir.) áður en þessi þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram.